09.08.26 - 21:34
Helgi Inguson
Sölvi: Ef hann fer úr treyjunni þá lítur hann út fyrir að vera í standi
Auglýsing

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tók á móti ÍBV í 18. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Leikar fóru 2-2 og Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍBV
„Það er í fyrsta lagi mjög svekkjandi að missa þetta niður í jafntefli. Við vorum með góða stjórn á milli teigannna og eftir að við fengum á okkur klaufalegt fyrsta mark. Þá algjörlega stjórnum við leiknum og spilum góðan fótbolta. Við komum okkur í 2-1 stöðuna en við hefðum hæglega getað skorað fleiri mörk og klárað leikinn," sagði Sölvi um leikinn.
Eyjamenn fengu vítaspyrnu undir lok venjulegs leiktíma. Sölvi segir að brotið hafi verið á Gunnari Vatnhamar áður en Sveinn Gísli var dæmdur brotlegur.
„Mér finnst eiga sér stað brot inn í teignum áður en vítadómurinn er dæmdur. Á Spiideo myndavélinni var togaður niður áður en þeir fara í skallaeinvígið. Það fer bara framhjá dómaranum en skítur skeður. Síðan erum við bara klaufar að setja lappirnar þetta hátt upp þegar við erum ekki með stjórn á boltanum."
Hrannar Snær Magnússon gekk til liðs við Víkinga á dögunum. Hrannar spilaði sinn fyrsta leik Víking áðan er hann kom inná sem varamaður.
„Hann er virkilega öflugur leikmaður. Hann er hraður og góður að taka menn á. Við sáum brot af hæfileikum hans í dag. Hann er virkilega kraftmikill og mun reynast okkur mjög vel."
Er Hrannar í standi til þess að byrja leiki strax?
„Það kemur í ljós. Ef hann fer úr treyjunni þá lítur hann út fyrir að vera í standi til þess að byrja leikina. Hann hugsar vel um sig og er mikill íþróttamaður. Ég er nokkuð viss um að hann geti byrjað leiki," sagði Sölvi að lokum.
Finna má viðtalið í fullri lengd í spilaranum fyrir ofan en Sölvi ræddi m.a. um Kjartan Kára sem var nærri því að ganga til liðs við félagið og Gunnar Vatnhamar sem er á förum