Fotbolti.net
09.08.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Enski deildabikarinn: Flugu áfram í aðra umferð

Patrick Bamford skoraði fyrsta mark Sheffield United í leiknum

Patrick Bamford skoraði fyrsta mark Sheffield United í leiknum

Canon

Mynd: Sheffield United

Mansfield Town 0 - 3 Sheffield Utd
0-1 Patrick Bamford ('4 )
0-2 Mark Mcguinness ('71 )
0-3 Callum O'Hare ('89 )
Chris Wilder og lærisveinar hans í Sheffield United tryggðu sér sæti í annarri umferð enska deildabikarsins með öruggum 3-0 sigri á Mansfield Town í dag.

Gestirnir voru ekki lengi að brjóta ísinn. Joe Rothwell reyndi þrisvar að skjóta að marki en boltinn fór í varnarmann í öll skiptin. Hann barst að lokum til Patrick Bamford sem sýndi hvernig átti að gera þetta og kláraði færið snyrtilega.

Sheffield United var sterkara liðið og hafði yfirhöndina á flestum sviðum. Mansfield fékk þó aðeins vind í seglin undir lok fyrri hálfleiks og í byrjun þess síðari.

Mark McGuinness slökkti þann vonarneista þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hann reis þá hæst í teignum og stangaði hornspyrnu Sydie Peck í netið.

Callum O'Hare rak síðan smiðshöggið undir lok leiksins. Romelle Donovan sendi boltann á fjærstöngina þar sem Ryan One skallaði hann fyrir markið og O'Hare kláraði af stuttu færi í þaknetið.

Fagmannleg frammistaða hjá Sheffield United sem verður í pottinum þegar dregið verður í aðra umferð á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.