Fotbolti.net
09.08.26 - 20:20
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 17. umferðar - BBB

Birnir Breki Burknason.

Birnir Breki Burknason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
17. umferð Lengjudeildarinnar lauk í dag en Afturelding er á toppi deildarinnar með jafnmörg stig og Þróttur en betri markatölu. Auk þess eiga Mosfellingar leik til góðar.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Birnir Breki Burknason - Leiknir
Birnir Breki var frábær þegar Leiknismenn unnu 3-0 sigur á grönnum sínum í Fylki. Hann skoraði fyrsta mark leiksins með frábærum tilþrifum (það er hægt að sjá það neðst í fréttinni) og var að skapa mikinn usla allan leikinn.

Bakvörðurinn ungi Bogdan Bogdanovic átti mjög góðan leik fyrir Breiðhyltinga og var með Kára Sigfússon í vasanum.

Aron Elí Sævarsson fyrirliði Aftureldingar var með stoðsendingu og var maður leiksins í 4-1 sigri gegn Grindavík. Bjartur Bjarmi Barkarson var frábær á miðjunni.

Markvörðurinn Guðmundur Rafn Ingason í Gróttu var maður leiksins í 1-1 jafntefli gegn Þrótti. Hinn afskaplega spennandi Mattías Kjeld skoraði mark Gróttu af vítapunktinum og er í fimmta sinn í úrvalsliðinu.

Njarðvík vann 3-1 sigur á Vestra og styrkti stöðu sína í umspilssætunum. Oumar Diouck skoraði tvö mörk og var maður leiksins. Alexander Helgi Sigurðarson átti frábæran leik á miðjunni en spilar hinsvegar út úr stöðu í vörninni í úrvalsliðinu!

Völsungur vann HK 3-2 í stórskemmtilegum leik þar sem Elfar Árni Aðalsteinsson var enn og aftur hetjan og skoraði sigurmarkið. Tómas Bjarni Baldursson skoraði og lagði upp og þá er Borja Iglesias þjálfari umferðarinnar. Húsvíkingar halda í vonina um að halda sér í deildinni.

Þá er Emil Nói Sigurhjartarson fulltrúi ÍR eftir 3-2 sigur á Ægi. Emil sérhæfir sig í að skora glæsileg mörk og gerði eitt slíkt í leiknum.



Fyrri úrvalslið:
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Aron Elí Sævarsson.

Aron Elí Sævarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Oumar Diouck.

Oumar Diouck.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding16+2234
2Þróttur R.17+2034
3Fylkir17+933
4Njarðvík17+529
5HK17+828
6Grótta16+426
7Leiknir R.17-222
8Vestri17-1021
9ÍR17-819
10Grindavík17-717
11Völsungur17-1614
12Ægir17-258
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.