Fotbolti.net
09.08.26 - 11:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Breytt útlit hjá stjóra Brighton

Svona leit Hurzeler út á síðasta tímabili.

Svona leit Hurzeler út á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, vakti talsverða athygli í æfingaleik liðsins gegn Roma í gær þar sem hann mætti á hliðarlínuna með breytt útlit.

Hurzeler, sem er 33 ára, var rakaður á höfðinu þegar Brighton tók á móti Roma á Amex-leikvanginum. Útlitið var töluvert öðruvísi en þegar Brighton lauk síðasta tímabili í ensku úrvalsdeildinni gegn Manchester United í maí.
Hár Hurzelers hefur verið nokkuð til umræðu meðal stuðningsmanna Brighton í aðdraganda nýs tímabils og hafa margir þeirra velt því fyrir sér hvort Þjóðverjinn hafi farið í hárígræðslu. Það væri þó önnur hárígræðslan sem hann fer í en hin er sögð ekki hafa heppnast nægilega vel.

Sumir stuðningsmenn hafa haldið því fram að Hurzeler hafi gengið með hárkollu á síðasta tímabili.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal sem Hurzeler fór í eftir leikinn í gær og breytt útlit hans.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.