Fotbolti.net
09.08.26 - 14:32
Brynjar Ingi Erluson

Brynjólfur fer vel af stað - Lærisveinar Freysa aftur á sigurbraut

Brynjólfur skoraði í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar

Brynjólfur skoraði í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur Andersen Willumsson fer vel af stað með Groningen á tímabilinu, en hann skoraði er liðið vann Utrecht, 2-1, í fyrstu umferð hollensku deildarinnar í dag.
Blikinn fór frábærlega af stað á síðasta tímabili og var valinn leikmaður ágústmánaðar áður en meiðsli settu strik í reikninginn.

Hann náði sér ekki almennilega á strik eftir áramót og skoraði ekki fleiri deildarmörk á tímabilinu. Brynjólfur virðist hins vegar staðráðinn í að finna sitt besta form á ný og gat varla beðið um betri byrjun.

Hann kom Groningen yfir strax á áttundu mínútu. Brynjólfur fékk boltann inn fyrir, hélt varnarmanninum frá sér og afgreiddi færið snyrtilega.

Hann kom boltanum aftur í netið á 34. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Brynjólfur fór af velli á 81. mínútu og Groningen vann leikinn, 2-1.

Jakob Gunnar Sigurðsson var einnig á skotskónum þegar Hilleröd tapaði 5-4 fyrir Vejle í ótrúlegum leik.

Jakob tók vel á móti löngum bolta úr vörninni og skoraði með skemmtilegri klippu. Þetta var fyrsta mark hans síðan hann kom til Hilleröd á láni frá Lyngby.

Hilleröd er enn án stiga og situr í næstneðsta sæti dönsku B-deildarinnar eftir þrjár umferðir.

Nóel Atli Arnórsson var í vörn Álaborgar sem gerði 1-1 jafntefli við Kolding. Álaborg er í þriðja sæti með sjö stig.

Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af bekknum hjá Malmö sem tapaði 2-1 fyrir Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni. Malmö er í sjöunda sæti með 23 stig.

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Rosenborg sneru aftur á sigurbraut með 2-0 útisigri á Lilleström.

Þetta var fjórði sigur Rosenborg undir stjórn Freys og er liðið komið upp í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 21 stig.

Freysi vann fjórða leik sinn sem þjálfari Rosenborg

Freysi vann fjórða leik sinn sem þjálfari Rosenborg

Canon

Mynd: Rosenborg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.