Fotbolti.net
09.08.26 - 12:21
Brynjar Ingi Erluson

Charles fer til Fulham

Charles fer til Fulham
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Shea Charles er á leið til Fulham frá Southampton, en Fabrizio Romano fullyrðir að samkomulag sé í höfn.
Charles er 22 ára gamall norðurírskur landsliðsmaður sem hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína undanfarin ár.

Hann hefur reglulega verið orðaður við stærri félög og fær nú tækifæri til að taka næsta skref á ferlinum.

Fulham hefur náð samkomulagi við Southampton um 30 milljóna punda kaupverð. Leeds United var einnig í baráttunni en ákvað að jafna ekki tilboð Lundúnafélagsins.

Southampton tryggði sér jafnframt hlutdeild í næstu sölu leikmannsins.

Charles er uppalinn hjá Manchester City og lék einn leik í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2022-2023. Hann gekk til liðs við Southampton árið 2023 og hjálpaði félaginu að komast upp í úrvalsdeildina.

Hann var síðan lánaður til Sheffield Wednesday þar sem hann sló í gegn og var valinn besti leikmaður liðsins. Charles sneri aftur til Southampton síðasta sumar og fylgdi góðu tímabili eftir með því að koma að átta mörkum í 38 leikjum.

Hann verður fjórði leikmaðurinn sem Fulham fær í sumar á eftir Gonzalo Garcia, Cesar Palacios og Jonah Kusi-Asare.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.