Fotbolti.net
09.08.26 - 13:59
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea gerði jafntefli við lið frá Malasíu

Liam Delap skoraði tvö vítaspyrnumörk

Liam Delap skoraði tvö vítaspyrnumörk

Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso og lærisveinar hans í Chelsea gerðu óvænt 3-3 jafntefli gegn malasíska liðinu Johor DT í æfingaleik á Sultan Ibrahim-leikvanginum í Johor Bahru í dag.
Alonso gaf mörgum tækifæri til að sanna sig og liðið var langt frá því að vera það sterkasta sem Chelsea getur boðið upp á. Stuðningsmennirnir hafa samt örugglega búist við meiru.

Johor komst yfir á 14. mínútu þegar Arif Aiman skoraði en Liam Delap jafnaði úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.

Delap skoraði aftur af punktinum þegar hálftími var eftir og kom Chelsea yfir. Sú forysta entist þó ekki lengi því Oscar Arribas jafnaði með frábæru marki beint úr aukaspyrnu.

Brasilíumaðurinn Bergson kom Johor aftur yfir á 87. mínútu en heimamönnum tókst ekki að halda út. Antonio Cristian stýrði boltanum í eigið net skömmu síðar og lokatölur urðu 3-3.

Það voru slæm tíðindi fyrir Chelsea í fyrri hálfleik þegar Aaron Anselmino meiddist aftan í læri. Argentínumaðurinn var nærri tárum þegar hann gekk af velli en Reggie Watson kom inn í hans stað

Chelsea spilar síðasta æfingaleik sinn gegn Real Sociedad eftir sex daga og mætir síðan Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 24. ágúst.

Byrjunarlið Chelsea: Sharman-Lowe (M), Subuloye, Adarabioyo, Anselmino, Quenda, Essugo, Nicoll-Jazuli, Gittens, Estevao, Delap, Jackson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.