Fotbolti.net
09.08.26 - 11:22
Brynjar Ingi Erluson

Flick kveður Araujo - „Höfum ekki getað notað hann eins mikið og við hefðum viljað“

Araujo er á leið til Liverpool

Araujo er á leið til Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick, þjálfari Barcelona á Spáni, hefur formlega kvatt úrúgvæska varnarmanninn Ronald Araujo, en hann er á leið til Liverpool á láni út tímabilið.
Araujo hefur borið fyrirliðabandið hjá Barcelona frá því í janúar.

Hlutverk hans hjá Börsungum hefur minnkað undanfarin ár og meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn. Úrúgvæinn er nú tilbúinn í nýtt ævintýri með Liverpool.

Hann kemur til Liverpool á láni út tímabilið en enska félagið getur keypt hann fyrir 55 milljónir evra.

„Ronald er góður leikmaður og frábær manneskja. Hann býr yfir miklum hraða og líkamlegum styrk en við höfum ekki getað notað hann jafn mikið og við hefðum viljað,“ sagði Hansi Flick.

Flick staðfesti jafnframt að Marc Casado og Roony Bardghji væru á förum frá Barcelona.

„Það var ekki auðvelt að ræða við Casado og Roony um framtíð þeirra, en ég gerði það. Svona gerist hjá fótboltafélögum og sérstaklega hér þar sem við þurfum að skapa pláss fyrir leikmenn sem eru að koma upp úr La Masia,“ sagði Flick.

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eiga einnig í viðræðum við Barcelona um Ferran Torres. Flick gat þó lítið sagt um stöðu mála.

„Ég ber mikla virðingu fyrir öllum leikmönnunum en veit ekkert um stöðuna eins og hún er núna. Ég einbeiti mér að liðinu og veit ekki hvað er að gerast í viðræðunum,“ sagði hann.

Barcelona vill hins vegar halda brasilíska vængmanninum Raphinha og Flick tók af allan vafa um mikilvægi hans.

„Rapha er einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Hann færir okkur gæði og ákefð og við þurfum á honum að halda,“ sagði Flick.
Raphinha verður áfram

Raphinha verður áfram

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.