09.08.26 - 15:25
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum framherji Vals skoraði þrennu fyrir Celtic í fyrri hálfleik

Kasper Högh var með sýningu í fyrri hálfleik

Mynd: Celtic

Danski sóknarmaðurinn Kasper Högh skoraði þrennu fyrir skoska stórveldið Celtic í 5-1 sigri þess á Kilmarnock í annarri umferð úrvalsdeildarinnar í dag.
Högh gekk til liðs við Celtic frá Bodö/Glimt fyrir metfé á dögunum en tókst ekki að komast á blað í fyrstu umferðinni.
Hann bætti heldur betur fyrir það í dag og skoraði þrennu strax í fyrri hálfleik.
Högh, sem lék fimm leiki með Val á láni frá Randers sumarið 2020, opnaði markareikninginn á annarri mínútu. Hann bætti síðan við tveimur mörkum á aðeins tveggja mínútna kafla undir lok hálfleiksins.
Stórsýning hjá Dananum sem skaut Celtic á toppinn. Liðið hefur unnið báða deildarleiki sína á tímabilinu. Stjórinn Martin O'Neill var ekki á hliðarlínunni í dag en hann er enn í leyfi eftir að hafa gengist undir aðgerð á sjúkrahúsi í síðustu viku.

Kasper Hogh celebrating with Celtic fans at full-time ???? pic.twitter.com/Lr0p6RMkki
— Sky Sports Scotland (@ScotlandSky) August 9, 2026