Fotbolti.net
09.08.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson

Fyrsti sigur Hearts á tímabilinu - Tap hjá Lyngby

Tómas Bent og félagar unnu Dundee

Tómas Bent og félagar unnu Dundee

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Tómas Bent Magnússon og hans menn í Hearts unnu 4-0 sigur á Dundee United í skosku úrvalsdeildinni í dag.
Eyjamaðurinn kom inn af bekknum þegar hálftími var eftir og hjálpaði Hearts að landa sínum fyrsta sigri á tímabilinu.

Hearts hafði tapað síðustu þremur keppnisleikjum og því kærkomið fyrir liðið að komast aftur á sigurbraut fyrir verkefnin fram undan.

Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru báðir í byrjunarliði Lyngby sem tapaði 2-0 fyrir Randers í dönsku úrvalsdeildinni.

Daníel Freyr Kristjánsson kom inn á þegar hálftími var eftir. Lyngby situr á botninum með eitt stig.

Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson byrjuðu hjá Gautaborg sem vann Kalmar, 3-2, í sænsku úrvalsdeildinni. Báðir fóru af velli í síðari hálfleik en Gautaborg er í tíunda sæti með 19 stig.

Róbert Frosti Þorkelsson var að venju í byrjunarliði GAIS sem vann góðan 2-0 útisigur á Halmstad. GAIS er í sjöunda sæti með 23 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.