Fotbolti.net
09.08.26 - 11:11
Brynjar Ingi Erluson

Gengur aftur í raðir Coventry

Gengur aftur í raðir Coventry
Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Coventry City eru að landa brasilíska miðjumanninum Gustavo Hamer frá Sheffield United en þetta kemur fram á Sky Sports.
Brasilíumaðurinn er öllum hnútum kunnugur hjá Coventry en hann lék með félaginu frá 2020 til 2023.

Hamer var seldur til Sheffield United fyrir 15 milljónir punda fyrir þremur árum. Hann skoraði fjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu og hefur síðan bætt við 17 mörkum undanfarin tvö tímabil.

Nú er hann á leið aftur til Coventry. Félögin hafa náð samkomulagi um sex milljóna punda kaupverð og mun Hamer gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning.

Stuðningsmenn Coventry verða eflaust í skýjunum með endurkomuna en Hamer var valinn besti leikmaður liðsins tvö ár í röð á fyrri dvöl sinni hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.