Fotbolti.net
09.08.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson

Guimaraes horfði á Arsenal tapa fyrir Dortmund - Ödegaard fór af velli eftir hálftíma

Gyökeres skoraði annað mark Arsenal úr vítaspyrnu

Gyökeres skoraði annað mark Arsenal úr vítaspyrnu

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal töpuðu 3-2 fyrir Borussia Dortmund í Emirates-bikarnum á samnefndum leikvangi í Lundúnum í dag.
Fyrir leikinn var Bruno Guimaraes kynntur fyrir stuðningsmönnum Arsenal. Brasilíumaðurinn gekk til liðs við félagið frá Newcastle United í gær fyrir 75 milljónir punda.

Dortmund byrjaði mun betur og komst í tveggja marka forystu á fyrsta hálftímanum.

Báðir markaskorararnir eru aðeins 18 ára gamlir. Mexíkóinn Samuele Inacio skoraði fyrra markið eftir sendingu Felix Nmecha og nýi maðurinn Kostas Karetsas bætti því síðara við.

Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, fór af velli á 33. mínútu en ekki liggur fyrir hvers vegna. Margir óttuðust að um meiðsli væri að ræða en líklegra er að mínútunum hjá honum hafi verið stýrt þar sem hann er nýkominn úr fríi.

Arsenal gerði eina breytingu í hálfleik þegar Illan Meslier kom í markið í stað Kepa Arrizabalaga.

Ethan Nwaneri minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik eftir stoðsendingu frá Christos Tzolis. Grikkinn hefur heillað verulega síðan hann kom frá Club Brugge í sumar.

Dortmund endurheimti tveggja marka forystuna á 58. mínútu. Hinn bráðefnilegi Joane Gadou skoraði þá úr miðjum teignum eftir hornspyrnu.

Viktor Gyökeres minnkaði muninn aftur í eitt mark úr vítaspyrnu á 69. mínútu og töldu heimamenn sig hafa jafnað metin þegar Gabriel Martinelli skoraði í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Dortmund vann því leikinn, 3-2, og tók Emirates-bikarinn með sér heim.

Arsenal hefur nú lokið undirbúningstímabilinu og mætir Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn um næstu helgi. Leikurinn fer fram á Principality-leikvanginum í Cardiff.

Byrjunarlið Arsenal: Kepa (M), White, Mosquera, Gabriel, Calafiori, Ödegaard, Lewis-Skelly, Havertz, Dowman, Gyökeres, Tzolis.

Joane Gadou skoraði fyrir Dortmund. Leikmaður sem vert er að fylgjast með á komandi tímabili, en hann kom frá Salzburg í sumar.

Joane Gadou skoraði fyrir Dortmund. Leikmaður sem vert er að fylgjast með á komandi tímabili, en hann kom frá Salzburg í sumar.

Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.