Jökull: Tvennt sem mér fannst erfitt á þessum kafla

Það voru kaflar í leikjum, stundum langir kaflar, þar sem mér fannst liðið spila af meiri ótta en áður, skortur á hugrekki sem er mjög ólíkt því sem við höfum séð frá þessu liði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðan hjá okkur þegar við fórum inn í mótið var þannig að mér fannst hún vera rétt og ég held að við hefðum þurft að taka menn inn ef einhver eða einhverjir færu út.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ef þeir sem ráða hafa ekki trú á því að þjálfarinn sé rétti maðurinn þá þarf ekkert að ræða neitt slíkt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alpha Conteh hefur verið meðal bestu leikmanna Keflavíkur á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Samúel Kári var seldur til Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það var tækifæri fyrir okkur til þess að koma stórir inn í þetta tímabil með rosalega samkeppni í liðinu. Í rauninni í fyrsta skipti sem við værum ekki að horfa á toppbaráttu sem „underdogs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru kaflar í leikjum, stundum langir kaflar, þar sem mér fannst liðið spila af meiri ótta en áður, skortur á hugrekki sem er mjög ólíkt því sem við höfum séð frá þessu liði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hér að neðan er hluti af viðtalinu sem birt var á föstudag fyrir áskrifendur. Allt viðtalið má nálgast í hlekknum neðst í fréttinni.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa viðtalið í heild sinni.
Varðandi ákvörðun stjórnar fyrir átta vikum síðan, hvernig horfir hún við þér í dag og hvernig horfði hún við þér á þeim tímapunkti? Varstu sár?
„Ég hef hvorki verið sár né reiður. Ég var auðvitað vonsvikinn að hætta að vinna með hópnum og tilhugsunin um að mæta ekki næsta dag til þess að reyna að hjálpa liðinu að verða betra var eiginlega bara óbærileg fyrstu dagana."
„Ég var búinn að skoða hvort það gæti verið að ég væri vandamálið og hvort það gæti verið að ég næði ekki lengur til hópsins og var með leiðir til að tékka mig af út frá nokkrum þáttum og niðurstaðan mín var alltaf sú að hópurinn hafði trú á því sem við vorum að gera og fyrir mér var þar sterkt og hópurinn á hrós skilið fyrir það.”
„Sjálfur hafði ég, og hef enn, óbilandi trú á þessum hóp og á því að við gætum snúið þessu við saman. Annars hefði ég gengið sjálfur út."
„Það var tvennt sem mér fannst erfitt á þessum kafla. Í fyrsta lagi þá vorum við að valda stuðningsmönnum okkar vonbrigðum. Fólkið okkar var ekki að fá það sem það átti skilið, það sýndi liðinu rosalegan stuðning nánast alveg sama hvernig gekk. Hitt var að fyrir þá leikmenn sem vildu ekki missa þjálfarann sinn, ég gat lítið gert til þess að losa þá við þann ótta. Þegar það gengur á leik eftir leik og menn eru alltaf að velta því fyrir sér hvort þjálfarinn mætir í dag að þá held ég að það geti „drain-að” menn.”
Fannst liðið spila af meiri ótta
Var það sýnilegt að menn gátu ekki verið eins frjálsir og þeir vildu vera inni á vellinum út af umfjölluninni um liðið?
„Ég get auðvitað ekki fullyrt um neitt. Svona umræða í svona langan tíma held ég að hafi klárlega áhrif á lið og örugglega alla leikmenn með mismunandi hætti, bæði leikmenn sem vilja ekki missa þjálfarann og þá sem yrðu fegnir."
„Það voru kaflar í leikjum, stundum langir kaflar, þar sem mér fannst liðið spila af meiri ótta en áður, skortur á hugrekki sem er mjög ólíkt því sem við höfum séð frá þessu liði.”
Það heyrðist af því kjölfar brottrekstursins að leikmannahópur Stjörnunnar hefði staðið þétt við bakið á Jökli og hafi ekki tekið tíðindunum vel þegar þau bárust.
Stjórnin missti trú en ekki leikmenn
Ef þú horfir til baka var eitthvað sem þeir sem stýra hlutunum á bakvið tjöldin hefðu getað gert til að létta pressuna á mönnum, þ.e.a.s. koma með skilaboð annað hvort inn á við eða út á við að starf þjálfarans sé ekki í hættu?
„Það eru einhverjir fletir á því. Ef stjórnin hefur trú á því sem við erum að gera, þá væri mjög sterkt að gera fólki það ljóst að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af því (að þjálfarinn verði rekinn) og það sé hægt að taka þann faktor út. Það eru svo auðvitað bara fabúleringar hvort sá faktor hafði áhrif á frammistöðuna. En það er háð því að það sé trú á því. Ef þeir sem ráða hafa ekki trú á því að þjálfarinn sé rétti maðurinn þá þarf ekkert að ræða neitt slíkt."
„Eins og þetta horfir við mér að þá missti hópurinn ekki trú en stjórnin missti trúna og stundum er það bara þannig. Aðeins eðlisfræðin lifir að eilífu, annað tekur enda og eitthvað nýtt tekur við.”
Brottrekstur var ekki versta niðurstaðan
Eftir bikartapið gegn Aftureldingu var vonin um Evrópusætið orðin lítil. Hugsaðir þú eftir þann leik að þetta gætu verið endalokin?
„Nei, ég var löngu búinn að ákveða að það yrði ekki versta niðurstaðan að ég yrði rekinn. Versta niðurstaðan fyrir mér var að liðið næði ekki að spila á þeim gildum sem við stóðum fyrir. Ég var hættur að fylgjast með umfjöllun og mætti því mjög brattur til vinnu alla morgna og það var ekkert öðruvísi eftir þennan leik. Fókusinn minn var að geta mætt og gefið liðinu orku sem ég hefði ekki getað gert ef ég færi með hugann við það hvort ég yrði rekinn.”
Hafði mikil áhrif að missa Alpha og Samma
Komandi inn í tímabilið í ár, varstu sáttur með samsetningu á hópnum? Var þetta hópur til að stefna á toppsætin, fara langt í bikar og áfram í Evrópu?
„Já, ég var sáttur við hópinn og er ennþá á því að hópurinn var vel samsettur. En það hins vegar breytist eftir fyrstu tvo leikina þegar við losuðum tvo mjög sterka leikmenn. Liðið var ennþá mjög sterkt en áður en Alpha og Sammi fóru þá var hópurinn miklu minni en í fyrra. Siggi var líka farinn á lán áður."
„Það var tækifæri fyrir okkur til þess að koma stórir inn í þetta tímabil með rosalega samkeppni í liðinu. Í rauninni í fyrsta skipti sem við værum ekki að horfa á toppbaráttu sem „underdogs"."
„Það að losa Alpha og Samma hafði mikil áhrif. Alpha er auðvitað búinn að sýna hvað í honum býr í Keflavík. Sammi var algjör lykilmaður í fyrra og mjög sterkur karakter. Ofan á það þá varð hópurinn of lítill. Það blasti við að stærð hópsins myndi ekki ráða við það að spila í tveimur keppnum fram í ágúst og því miður þá kom það á daginn og við lentum í rosalega miklum meiðslum. Við hefðum auðvitað getað breytt leikstílnum en ég vildi það ekki, við vorum alltaf að fara að spila orkumikinn og orkufrekan fótbolta þó svo að það myndi kosta í þéttu prógrammi. Við vorum ekki að fara að bakka frá neinu sem við ætluðum að gera, sama hver staðan á hópnum var. Það var ekkert vandamál að sækja leikmenn í 3. flokkinn.”
„Liðið var mjög sterkt samt sem áður og það að Alpha og Sammi hafi farið var ekki ástæðan fyrir fyrstu tapleikjunum. Þar hefðum við einfaldlega átt að gera betur eins og auðvitað í öllum tapleikjum.“
Óskaði eftir því að fá menn í staðinn
Samúel Kári Friðjónsson og Alpha Conteh fóru frá Stjörnunni fyrir gluggalok en engin styrking kom á móti.
„Stundum fara menn, það getur gerst með alls konar hætti og af alls konar ástæðum. Staðan hjá okkur þegar við fórum inn í mótið var þannig að mér fannst hún vera rétt og ég held að við hefðum þurft að taka menn inn ef einhver eða einhverjir færu út.”
Óskaðir þú eftir því að fá inn leikmenn?
„Já ég gerði það, mér fannst þarna vanta upp á hópinn."
Mikið hrós til allra
Tíminn í heild sinni hjá Stjörnunni, það eru margir leikmenn seldir erlendis og liðið var mjög ungt fyrstu tvö árin. Hvernig horfir þú til baka?
„Ég horfi til baka og fyllist bara stolti. Það er margt sem stendur upp úr. Þar er helst vinnan með hópnum og að fá að fylgjast með mönnum þróast og þroskast. Hluti af því er að ungir leikmenn voru seldir út. Eitt skemmtilegasta var að ég held að hver einasti leikmaður hafi bætt sig gríðarlega mikið á þessum tíma, það er mikið hrós til allra sem að þessu stóðu og sérstaklega til leikmannanna sem voru tilbúnir að leggja mikið á sig og búa til umhverfi þar sem menn bæta sig og þroskast. Við hækkuðum allan „standard" í öllu sem við gerðum í kringum liðið. Mér fannst líka eldri leikmennirnir bæta sig mikið á þessum tíma. Öll vinnan og að sjá menn verða öflugri, þroskast, fara út úr þægindarammanum og skora á sjálfa sig og aðra í kringum sig, það var mjög gefandi og dýrmæt reynsla.”
„Það að koma ungum leikmönnum í gegn er frábært. Það að sjá menn fara og upplifa drauminn og ná að taka næsta skref í því sem þeir vilja gera. Þeir eru allir mjög ólíkir og voru allir á mjög ólíkum stað í kringum meistaraflokkinn.”
Allir standa upp úr
Er einhver leikmaður sem þú vilt taka út fyrir sviga?
„Nei það standa allir upp úr. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna með öllum sem ég fékk að vinna með. Líka fólkinu í Stjörnunni og teyminu. Við vorum með öflugt teymi og ég var með nokkra aðstoðarþjálfara, Hrannar (Bogi Jónsson) er frábær, (Steven) Caulker kom frábærlega inn, ég er ánægður að hafa unnið með honum, hann var mjög öflugur og verður virkilega góður þjálfari. Bjössi (Björn Berg Bryde) var geggjaður og ég hef oft saknað hans eftir að hann fór, gaman að sjá hann taka skrefið úr því að verða leikmaður í að verða þjálfari sem er alveg erfitt á þessum aldri og þessum stað þar sem þú þekkir allan hópinn. Hann var frábær."
„Ég er stoltur og þakklátur fyrir tímann í Stjörnunni, ég naut hverrar sekúndu og óska þeim alls hins besta!” sagði Jökull.

Jökull ræðir brottreksturinn: Virkilega vonsvikinn með vinnubrögðin

Staðan hjá okkur þegar við fórum inn í mótið var þannig að mér fannst hún vera rétt og ég held að við hefðum þurft að taka menn inn ef einhver eða einhverjir færu út.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ef þeir sem ráða hafa ekki trú á því að þjálfarinn sé rétti maðurinn þá þarf ekkert að ræða neitt slíkt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alpha Conteh hefur verið meðal bestu leikmanna Keflavíkur á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Samúel Kári var seldur til Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það var tækifæri fyrir okkur til þess að koma stórir inn í þetta tímabil með rosalega samkeppni í liðinu. Í rauninni í fyrsta skipti sem við værum ekki að horfa á toppbaráttu sem „underdogs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
