09.08.26 - 13:44
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður nýliðanna fór hamförum gegn Stefáni Teiti og félögum

Stefán Teitur er fyrirliði Hannover

Mynd: Hannover 96

Lúkas Petersson var í marki varaliðs Hoffenheim í þýsku C-deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur er fyrirliði Hannover

Mynd: Hannover 96
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Hannover töpuðu fyrir nýliðum Energie Cottbus, 3-1, í fyrstu umferð þýsku B-deildarinnar í dag.
Hannover greindi frá því á dögunum að Stefán Teitur Þórðarson yrði fyrirliði liðsins á tímabilinu. Hann kom til félagsins frá Preston í byrjun árs.
Stefán átti góðan leik á miðsvæðinu og lét tvívegis vaða fyrir utan teig. Fyrra skotið hafnaði í stönginni og Marcel Lotka, markvörður Cottbus, varði það síðara.
Lotka átti stórkostlega frumraun í marki nýliðanna og var maður leiksins. Hannover hefði hæglega getað gert út um leikinn í fyrri hálfleik en Lars Gindorf, samherji Stefáns, gat ómögulega komið boltanum framhjá Lotka.
Cottbus refsaði fyrir slæma færanýtingu Hannover. Tolcay Cigerci skoraði tvö mörk og Justin Butler eitt í 3-1 sigri nýliðanna. Stefán lék allan leikinn á miðsvæðinu.
Gísli Gottskálk Þórðarson, sem kom til St. Pauli á láni frá Lech Poznan á dögunum, var ekki í leikmannahópnum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Greuther Furth.
Lúkas Petersson stóð í marki varaliðs Hoffenheim sem tapaði 3-2 fyrir Hansa Rostock í þýsku C-deildinni.
Helgi Fróði Ingason var þá í byrjunarliði Helmond Sport sem gerði 1-1 jafntefli við De Graafschap í hollensku B-deildinni.