09.08.26 - 13:04
Brynjar Ingi Erluson
Marmoush skoraði tvö gegn Atlético - Sjáðu frábæran undirbúning Semenyo

Omar Marmoush gerði tvö mörk fyrir Man City

Mynd: EPA

Semenyo lagði upp bæði fyrir Marmoush, en undirbúningur hans í fyrra markinu var algerlega stórkostlegur

Omar Marmoush skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í 3-1 sigri Manchester City á Atlético Madríd í æfingaleik á HM-leikvanginum í Seúl í Suður-Kóreu í dag.
Jorge Dominguez, 16 ára gamall varnarmaður Atlético, braut ísinn undir lok fyrri hálfleiks. Hann fékk boltann eftir hornspyrnu og lagði hann snyrtilega fram hjá Gianluigi Donnarumma.
Atlético leiddi 1-0 í hálfleik en Marmoush var fljótur að snúa leiknum City í hag eftir hlé.
Hann jafnaði metin á 57. mínútu eftir stórkostlegan undirbúning Antoine Semenyo. Ganamaðurinn var við það að missa boltann út af á vinstri vængnum en náði að halda honum inni, lék á varnarmann Atletico og kom honum fyrir á Marmoush sem skoraði úr miðjum teignum.
Tveimur mínútum síðar lagði Semenyo aftur upp fyrir Marmoush. Hann slapp inn fyrir vinstra megin og renndi boltanum á Marmoush sem skoraði auðveldlega.
Rayan Ait-Nouri gulltryggði síðan sigurinn undir lok leiksins. Divin Mubama stakk boltanum inn fyrir vörnina og Ait-Nouri lagði hann í hægra hornið.
Lokatölur urðu 3-1 fyrir Manchester City sem hefur þar með lokið undirbúningstímabilinu.
Liðið heldur nú heim til Englands og býr sig undir leikinn gegn Arsenal í Samfélagsskildinum. Leikurinn fer fram á Principality-leikvanginum í Cardiff eftir viku.

That assist ????
— Manchester City (@ManCity) August 9, 2026
Semenyo tees up Marmoush to level the scores in Seoul! ? pic.twitter.com/mrGDxDBhHz