09.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spilaði sinn fyrsta leik í eitt og hálft ár

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA

Birna Rún Þórólfsdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir ÍA síðan í janúar 2025 þegar hún kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri á Tindastóli í Lengjudeild kvenna í vikunni.
Birna Rún (2006) sleit krossband í fyrir rúmlega einum og hálfum mánuði síðan og hefur ferðalagið hjá varnarmanninum verið langt og strangt. Hún kom inn á þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

„Birna sleit krossband á æfingu í byrjun janúar 2025. Ferðalagið hefur verið langt og strangt en Birna hefur staðið sig vel, verið þolinmóð og þurft að hafa fyrir þessu bataferli. Það voru mikil gleðitíðindi í gær þegar hún kom inn á," segir í færslu hjá ÍA á Facebook.
Hún er uppalin á Skaganum og hefur spilað 35 leiki fyrir liðið. Hún var valin besti ungi leikmaður liðsins árið 2024.
Hún er uppalin á Skaganum og hefur spilað 35 leiki fyrir liðið. Hún var valin besti ungi leikmaður liðsins árið 2024.