09.08.26 - 16:41
Brynjar Ingi Erluson
Thelma aftur á toppinn - Cecilía hélt hreinu

Thelma Karen er á toppnum í Svíþjóð

Mynd: KSÍ

Thelma Karen er á toppnum í Svíþjóð

Mynd: KSÍ

Thelma Karen Pálmadóttir og stöllur hennar í sænska meistaraliðinu Häcken eru komnar aftur í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar.
Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Häcken sem vann frábæran 4-1 sigur á Piteå.
Sigurinn skilaði Häcken á topp deildarinnar með 36 stig, tveimur meira en Hammarby, eftir þrettán umferðir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í marki Inter sem marði 1-0 sigur á Union Berlín í æfingaleik. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á þegar stundarfjórðungur var eftir.
Þetta var næstsíðasti æfingaleikur Inter áður en Seríu A-bikarinn hefst.
Glódís Perla Viggósdóttir lék í vörn Bayern München sem vann Paris FC, 2-0, í síðasta æfingaleik sumarsins.
Næst tekur alvaran við hjá Bayern sem mætir Wolfsburg í Ofurbikar Þýskalands eftir sex daga.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í liði Leipzig sem gerði 1-1 jafntefli við PEC Zwolle. Leipzig á tvo æfingaleiki eftir áður en þýska deildin hefst.