Michael Essien hefur verið ráðinn í þjálfaratemyið hjá FC Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.
Hinn 37 ára gamli Essien spilaði síðastliðinn vetur með Sabail í Aserbaídsjan auk þess að þjálfa U19 ára lið félagsins.
Á dögunum fékk Essien að heimsækja Nordsjælland og fylgjast með æfingum félagsins.

Flemming Pedersen, þjálfari Nordsjælland, ákvað í kjölfarið að ráða Essien í þjálfarateymi sitt. Essien mun einnig taka þátt á sumum æfingum hjá Nordsjælland.
Essien á mjög farsælan feril að baki en hann spilaði meðal annars með Chelsea í áraraðir.
Athugasemdir