02.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Rúnar fékk rautt fyrir að grýta brúsa í vegg

Rúnar Kristinsson sá rautt spjald gegn ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, verður í leikbanni í næsta leik gegn sínu gamla félagi KR eftir að hann sá rauða spjaldið í 2-1 sigrinum á ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum í gær.

TENGT EFNI
Sex í banni eftir Þjóðhátíðarleikinn
Rúnar sá rauða spjaldið á 81. mínútu. Þórður Þorsteinn Þórðarson, dómari leiksins, dæmdi þá brot á leikmann Fram og lyfti gula spjaldinu. Rúnar áttaði sig um leið á því að leikmaðurinn yrði í banni í næsta leik.
„Ég snöggreiddist. Hann (Þórður Þorsteinn Þórðarson) dæmdi brot á minn mann og gaf honum gult spjald. Ég vissi að hann væri að fara í bann og við vorum þá þegar búnir að missa tvo í bann í næsta leik,“ sagði Rúnar við Vísi.
Í kjölfarið grýtti Rúnar brúsa í vegg og fékk reisupassann. Hann verður því sjálfur í banni ásamt þremur leikmönnum Fram, þeim Ægi Jarl Jónassyni, Sigurjóni Rúnarssyni og Israel Garcia.
„Mér fannst það bara rangt af honum og var að pirra mig. Ég grýtti brúsanum í vegginn. Ég má það víst ekki og verð bara að taka þetta á mig. Þetta var örstutt bræðiskast sem ég tók en ég var búinn að vera slakur allan leikinn og ræða við menn í rólegheitum. Þetta er það sem gerist. Maður hefur skap og vill vernda sína menn og líka passa upp á að koma skilaboðum til dómara. Skilaboðin voru ekki að kasta brúsanum í vegginn. Ég var búinn að ræða við fjórða dómara og ég var eitthvað voðalega reiður,“ sagði Rúnar enn fremur.
Hann gat þó fagnað dýrmætum sigri sem kom Fram upp í annað sæti með 37 stig. Framarar eru tveimur stigum á undan gömlu félögum Rúnars í KR, sem eiga þó leik til góða.

Heimild: Vísir.is
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 4 | Breiðablik | 16 | +9 | 29 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍA | 16 | -8 | 18 |
| 8 | ÍBV | 17 | -9 | 16 |
| 9 | KA | 16 | -8 | 15 |
| 10 | Stjarnan | 16 | -12 | 15 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 16 | -25 | 12 |