Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. september 2021 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
PSG getur keypt Nuno Mendes fyrir 40 milljónir
Mynd: EPA
Portúgalski vinstri bakvörðurinn Nuno Mendes gekk í raðir PSG á lánssamningi frá Sporting á dögunum.

PSG borgar 7 milljónir evra fyrir að fá Mendes lánaðan í eitt ár en hann er aðeins 19 ára gamall og búinn að vinna sér inn sæti í byrjunarliði portúgalska landsliðsins.

Fabrizio Romano greinir frá því að í lánssamningnum sé kaupmöguleiki sem hljóði upp á 40 milljónir evra til viðbótar.

Manchester City sýndi Mendes áhuga í sumar en vildi ekki bjóða meira en 20 milljónir. Verðmiðinn á honum eru 45-50 milljónir.
Athugasemdir
banner
banner