Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. febrúar 2021 23:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Andrés Már: Hefði verið gaman að enda þetta á kveðjuleik á heimavelli
Sá leikjahæsti lagði skóna á hilluna.
Sá leikjahæsti lagði skóna á hilluna.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Í baráttunni við Albert Brynjar Ingason á landsliðsæfingu
Í baráttunni við Albert Brynjar Ingason á landsliðsæfingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gegn Stálmúsinni í Noregi
Gegn Stálmúsinni í Noregi
Mynd: Haugasund
Það var mikil stemning í kringum það og gaman að upplifa
Það var mikil stemning í kringum það og gaman að upplifa
Mynd: Úr einkasafni
En ég er auðvitað stoltur að því að vera leikjahæsti leikmaðurinn hjá uppeldisfélaginu.
En ég er auðvitað stoltur að því að vera leikjahæsti leikmaðurinn hjá uppeldisfélaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrés Már Jóhannesson henti skónum upp í hilluna frægu eftir síðasta tímabil. Andrés er 32 ára og hafði allan sinn feril leikið með Fylki ef frá er talin dvöl í Noregi.

Andrés var hluti af U21 árs landsliðinu sem komst inn á, og tók þátt í lokakeppninni árið 2011 í Danmörku. Andrés tók þátt í mörgum leikjum í undankeppninni en varð að gera sér það að góðu að sitja á bekknum í Danmörku.

Fótbolti.net hafði samband við Andrés og spurði hann út í ákvörðunina. Andrés hafði leikið þrjá leiki á síðustu leiktíð, hvers vegna voru þeir ekki fleiri?

„Eftir tímabilið 2019 var ég nánast búinn að ákveða að þetta væri komið gott vegna meiðsla og hausinn kominn annað. En ég ákvað að taka eitt season í viðbót en í öðruvísi hlutverki en ég hafði verið áður. Svo þróaðist þetta þannig að ég var í vinnu, námi og eignaðist barn þannig að fótboltinn endaði í síðasta sæti," sagði Andrés.

Er hann svekktur að þetta endaði á þennan hátt?

„Það hefði verið gaman að enda þetta öðruvísi og á kveðjuleik á heimavelli en það var leiðinlegt að þetta var blásið af."

Verður Andrés eitthvað viðloðinn þjálfun eða eitthvað tengdu starfinu hjá Fylki?

„Ekki eins og staðan er núna. Ég er í skemmtilegu og krefjandi starfi hjá Sportabler og spennandi tímar framundan þar en ég hugsa að ég prófi þjálfun á einhverjum tímapunkti og sjái hvort ég eigi eitthvað erindi á þeim vettvangi."

Umspilsleikurinn og árið 2011 var hápunkturinn
Hver er svona hápunkturinn á ferlinum þegar þú lítur til baka?

„Það er sennilega árið 2011. Mér gekk vel hjá Fylki það árið og var með EM U21 hópnum. Eftir það var ég svo seldur til Noregs. Einnig var 2009 tímabilið virkilega skemmtilegt."

2011, gott og blessað en Andrés var beðinn um að negla niður einn stakan hápunkt.

„Ég myndi segja að umspilsleikurinn, þegar við tryggðum okkur inn á lokamótið með sigri gegn Skotum, að það hafi verið hápunkturinn."

Hvernig var upplifun Andrésar af EM U21?

„Það var mikil stemning í kringum það og gaman að upplifa. Þetta var stór áfangi fyrir íslenska fótboltann, vakti mikla athygli og margir sem fylgdust með. Ég spilaði að vísu ekki neitt þó ég hafi spilað marga leiki í undankeppninni en þessir árgangar eru gríðarlega sterkir. Það var erfitt að komast að í lokakeppninni og margir mjög frambærilegir leikmenn sem komust ekki í lokahópinn."

Reif upp Stál og Hníf í nýliðavígslunni
Andrés lék einn A-landsleik á sínum ferli. Sá kom gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum árið 2016. Kom það honum á óvart að vera valinn til að þátt í þessu verkefni?

„Já, það kom vissulega á óvart. Ég náði mér á strik seinna hluta tímabilsins 2015 og var bæði meiðslalaus og í góðu standi. Það er gaman að hafa náð landsleik með mörgum sterkum leikmönnum og gaman að sjá hvernig Lars og Heimir störfuðu."

Hvaða Bubbalag tókstu í nýliðavígslunni?

„Ég tók Stál og Hnífur með miklum glæsibrag, allavega í minningunni."

Ágætur tími og góð reynsla
Andrés var keyptur til Haugasund eftir tímabilið 2011. Hvernig lítur tíminn hjá norska félaginu við honum?

„Þetta var ágætur tími og góð reynsla. Ég fékk þarna mjög gott tækifæri en tókst því miður ekki að nýta það. Ég kom inn í þetta þegar það var mikill uppgangur í félaginu. Þetta er mikill fótboltabær og þar var verið að byggja nýjan völl. Félagið náði sínum besta árangri 2013 með því að enda í 3. sæti í efstu deild."

Var þetta í eina sinn á ferlinum sem kom áhugi að utan?

„Það var mikill áhugi eftir tímabilið 2009 en það fjaraði svo út. 2011 voru svo nokkur lið sem sýndu áhuga en Haugasund var það félag sem kom með tilboð. Eftir dvölina þar hefði ég getað fært mig um set í Noregi en ákvað að koma heim."

Hefði verið gott en auðvitað stoltur
Á Íslandi lék Andrés alltaf með Fylki eins og áður hefur fram komið. Er það eitthvað sem hann er stoltur af? Kitlaði aldrei að prófa eitthvað annað?

„Það kitlaði vissulega og það kom upp nokkrum sinnum að ég hefði getað farið í liðin sem hafa barist á toppnum undanfarin áratug. Ég held það hefði verið gott fyrir mig að fá nýja áskorun og sennilega ágætt fyrir Fylki að losna við mig líka þegar maður lítur til baka," sagði Andrés léttur.

„En ég er auðvitað stoltur að því að vera leikjahæsti leikmaðurinn hjá uppeldisfélaginu."

Hefði viljað vinna titil
Er eitthvað eitt sem kemur upp sem Andrés hefði viljað afreka á sínum ferli?

„Það hefði verið gaman að vinna titil," sagði Andrés að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner