West Ham 1 - 1 Manchester Utd
1-0 Tomas Soucek ('50 )
1-1 Benjamin Sesko ('90 )
1-0 Tomas Soucek ('50 )
1-1 Benjamin Sesko ('90 )
Sigurganga Manchester United undir stjórn Michael Carrick er á enda. Eftir að hafa lagt Manchester City, Arsenal, Fulham og Tottenham að velli þá gerði United dramatískt jafntefli gegn West Ham í kvöld.
Það kryddaði leikinn heldur betur að hinn hárprúði Frank Ilett gat komist í klippingu með sigri Man Utd í leiknum. Ilett, þekktur sem The United Strand, hefur hlotið heimsfrægð á samfélagsmiðlum eftir að hann gaf það út að hann myndi ekki klippa hár sitt nema ef Manchester United myndi vinna fimm leiki í röð.
United hafði unnið fjóra í röð eftir að Carrick tók við og 493 daga bið Ilett eftir klippingu gat klárast í kvöld. En það varð ekki og Ilett þarf að bíða lengur.
Lengi vel stefndi í sigur West Ham þar sem Tomas Soucek skoraði í byrjun seinni hálfleiks. Varnarleikur Man Utd hefði klárlega getað verið betri í því tilviki.
Man Utd skoraði mark stuttu síðar en það var dæmt af vegna rangstöðu. Tæpt var það þegar Casemiro skoraði en markið var dæmt af eftir VAR skoðun.
Það virtist sem West Ham myndi bera sigur úr býtum en í uppbótartímanum skoraði Benjamin Sesko jöfnunarmark. Ekki í fyrsta sinn á þessu tímabili þar sem hann skorar í uppbótartíma. Stuttu áður en Sesko hafði Callum Wilson fengið dauðafæri en Senne Lammens varði frá honum.
Lokatölur 1-1 og er Man Utd áfram í fjórða sæti með 45 stig. West Ham er áfram tveimur stigum frá öruggu sæti.
???? ????????????: HE CAN'T TAKE THIS ANYMORE, HE WANTS THAT HAIR CUT! pic.twitter.com/dQal2eYbuA
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) February 10, 2026
Athugasemdir


