Haukur Páll: Þurftum bara að anda og slaka aðeins á
Auglýsing

Haukur Páll Sigurðsson

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Við vorum rólegri á boltanum, kannski of hátt spennustig í fyrri hálfleik en vorum töluvert rólegri og drógum bara djúpt andann og það gekk miklu betur þegar við vorum með boltann.“ Sagði Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals eftir 2-1 endurkomusigur Vals gegn ÍBV fyrr í kvöld en Valsmenn voru í vandræðum með sprækt lið ÍBV í fyrri hálfleik.
Pressa ÍBV olli Valsmönnum miklum vandræðum framan af fyrri hálfeik og geta þeir þakkað Frederik Schram markverði sínum ásamt lukkunni að hafa ekki lent meira en 1-0 undir í fyrri hálfleik. Voru taugar Valsmanna þanndar fyrir leik?
„Nei nei, við erum það reynslumikið lið. Auðvitað er alltaf spenna þegar þetta er að byrja og fyrsti leikur og ef þessi fiðringur væri ekki þá væri maður löngu hættur í þessu sporti. Það er alltaf smá spenna í þessu en við þurftum bara að anda og slaka aðeins á. Vera ekki svona "tense" og eins og kannski sást þá gekk þetta betur í seinni.“
Líkt og með pressu ÍBV gekk Valsmönnum illa að byggja upp eigin sóknarleik í fyrri hálfleik sem sprakk þó út í þeim seinni með tilætluðum árangri.
„Já við fórum í þessar færslur sem við erum búnir að vera að æfa og og þorðum að fara í þær og það er bara megin ástæðan. Við töluðum um þetta í hálfleik og og fórum yfr þetta og löguðum þetta.“
Sagði Haukur Páll en allt viðtalið má sjá hér að ofan.