Króatíska félagið NK Lokomotiva Zagreb hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fótbolta.net samþykkt tilboð frá Keflavík í sóknarmanninn Oliver Heiðarsson.
Oliver gekk til liðs við króatíska félagið í janúar en þangað fór hann frá ÍBV. Þar hafa tækifærin hins vegar verið af afar skornum skammti en hann hefur ekki komið við sögu í deildarleik.
Nýlega var greint frá því í fjölmiðlum að íslensk lið hefðu áhuga á Oliver og nú er ljóst að Keflvíkingar hafa fengið samþykkt kauptilboð í leikmanninn.
Oliver er 25 ára gamall leikmaður og hefur spilað með Þrótti, FH og ÍBV hér á landi. Hann á að baki 124 meistaraflokksleiki á Íslandi og hefur skorað í þeim 29 mörk.
Hann er sonur Heiðars Helgusonar, fyrrum atvinnu og landsliðsmanns í knattspyrnu.
Keflavík leikur í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa sigrað Lengjudeildarumspilið í fyrra, Liðið mætir KR á útivelli í fyrstu umferð á sunnudag.


