
Í kvöld mætast Norður-Írland og Ísland í vináttulandsleik á Windsor Park í Belfast. Leikurinn hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma.
Fyrir leikinn mun fótboltasamband Norður-Írlands heiðra þá Jonny Evans og Steven Davies fyrir ferla sína með landsliði þjóðarinnar.
Fyrir leikinn mun fótboltasamband Norður-Írlands heiðra þá Jonny Evans og Steven Davies fyrir ferla sína með landsliði þjóðarinnar.
Evans er næst sigursælasti leikmaður í fótboltasögu Norður-Írlands og lék alls 107 landsleiki. Hann lagði landsliðsskóna á hilluna á síðasta ári og í maí tilkynnti hann að skórnir væru alfarið komnir á hilluna.
Meðal titla sem hann hefur unnið eru þrír Englandsmeistarar og Meistaradeildartitill með Manchester United.
Steven Davis lék 140 landsleiki og er leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Norður-Írlands. Hann var fyrirliði liðsins a EM 2016 þegar Norður-Írland komst í 16-liða úrslit. Hann vann Skotlandsmeistaratitilinn fjórum sinnum með Rangers.
Athugasemdir