Fotbolti.net
03.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Myndi skipta Ballon d'Or fyrir Meistaradeildina

Myndi skipta Ballon d'Or fyrir Meistaradeildina
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Harry Kane hreppti eftirsóttustu einstaklingsverðlaun fótboltaheimsins í lok október þegar hann var titlaður sem besti fótboltamaður heims á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni.
Stigagjöf Ballon d'Or: Munaði mjög litlu
TENGT EFNI

Stigagjöf Ballon d'Or: Munaði mjög litlu

Hann myndi þó skipta verðlaunum út fyrir sigur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Kane er 33 ára og var fyrsti Englendingurinn til að vinna Ballon d'Or síðan 2001. Þá er hann fyrsti leikmaður Bayern til að vinna kosninguna síðan Karl-Heinz Rummenigge 1981.

„Fótbolti er liðsíþrótt og fótboltamenn eru allir sólgnir í að vinna stærstu keppnirnar. Að vinna Ballon d'Or í síðustu viku var ein af bestu tilfinningum sem ég hef nokkurn tímann upplifað í mínu lífi," sagði Kane á fréttamannafundi fyrir afar spennandi stórleik FC Bayern gegn Atlético Madrid í Meistaradeildinni.

„Þrátt fyrir það þá veit ég að það væri ótrúlegt að vinna Meistaradeildina og geta fagnað því með liðsfélögunum og félaginu sjálfu. Ef ég þyrfti að velja þá myndi ég velja Meistaradeildina, en ég hef tækifæri til að vinna hvoru tveggja.

„Að vinna Ballon d'Or er magnað afrek en ég vil spila alla stærstu úrslitaleikina, ég vil spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar og upplifa að vinna keppnina með strákunum."


Kane hefur einu sinni komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, þegar Tottenham tapaði 2-0 gegn Liverpool 2019.

Kane talaði einnig um samningsmál og staðfesti að hann mun skrifa undir nýjan samning við Bayern á næstu dögum.
Myndi skipta Ballon d'Or fyrir Meistaradeildina
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Aston Villa3+99
3Liverpool3+59
4Real Madrid3+59
5Betis3+39
6Stuttgart3+57
7Arsenal3+47
8Barcelona3+56
9Como3+56
10Man City3+46
11Club Brugge3+36
12Sporting3+36
13Dortmund3+16
14Bayern3+55
15Roma3+34
16Atletico Madrid3+14
17Shakhtar D3+14
18PSV304
19Villarreal303
20Man Utd3-13
21Inter3-13
22Napoli3-23
23Galatasaray3-33
24LASK Linz3-33
25Sabah FK3-33
26Feyenoord3-43
27Lens3-43
28Bodö/Glimt3-53
29AEK3-53
30RB Leipzig3-53
31Fenerbahce3-62
32Slavia Prag3-31
33Viking FK3-41
34Porto3-40
35Lille3-60
36Slovan3-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.