Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 17:11
Kári Snorrason
Andri Lucas með áhugavert svar - Þegar spilað gegn þeim besta
Þegar spilað gegn þeim besta.
Þegar spilað gegn þeim besta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spjall Daníels Tristans Guðjohnsen og Lionel Messi eftir vináttuleik Íslands og Argentínu í nótt hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Stuðningsmaður Blackburn skrifaði við myndband af samræðum Daníels og Messi á X að það væri mikil synd að Andri Lucas, bróðir Daníels og leikmaður Blackburn, hefði ekki getað spilað á móti þeim besta í sögunni.

Andri svaraði færslunni og sagði stuðningsmanninum ekki að hafa neinar áhyggjur þar sem hann hefði þegar spilað gegn þeim besta og birti mynd af sér og Cristiano Ronaldo takast í hendur eftir leik Íslands og Portúgals.

Andri fór í gegnum akademíu Real Madrid og er því eflaust hrifnari af þeim portúgalska frekar en Messi.


Slapp
banner
banner