Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Baldvin testatröll en Haukur var að fínpússa lag
'Nei, ég er ekki sáttur með spiltímann minn, mér finnst ég eiga að spila alla leiki'
'Nei, ég er ekki sáttur með spiltímann minn, mér finnst ég eiga að spila alla leiki'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gummi Baldvin fór í skemmtilegt viðtal við Vísi.
Gummi Baldvin fór í skemmtilegt viðtal við Vísi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar Breki lagði upp markið fyrir Hauk.
Arnar Breki lagði upp markið fyrir Hauk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:30 mætast Afturelding og Stjarnan í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, spilað verður á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.

Fótbolti.net ræddi við Hauk Örn Brink (2005), leikmann Stjörnunnar, fyrir leikinn. Hann var sjóðandi heitur á undirbúningstímabilinu og skoraði sitt fyrsta mark í sumar í síðasta deildarleik.

Gaman að spila úrslitaleiki
„Þessi leikur leggst mjög vel í mig, bikarleikir eru allt úrslitaleikir og það er alltaf gaman að taka þátt í þannig leikjum. Afturelding er vel spilandi lið og við þurfum að spila okkur leik og halda orkustiginu háu," segir Haukur.

„Finnst ég eiga að spila alla leiki"
Hvernig líður þér með tímabilið til þessa, ertu sáttur með þinn spiltíma?

„Tímabilið til þessa er ekki búið að vera gott og við ætluðum okkur meira, en það er mikil trú í hópnum og við ætlum okkur að snúa þessu við og frammistaðan og sigurinn gegn Þór gefur okkur sjálfstraust upp á framhaldið."

„Nei, ég er ekki sáttur með spiltímann minn, mér finnst ég eiga að spila alla leiki."


Stjarnan hefur verið ágætis bikarlið síðustu ár en ekki farið alla leið. Aðspurður um hvort markmiðið væri að fara alla leið í ár svaraði Haukur mjög einfaldlega: „Já, við ætlum okkur alla leið."

Vann í lagi í landsleikjahléinu
Leikurinn er fyrsti leikur eftir smá landsleikjahlé. Það vakti athygli í síðustu viku þegar Guðmundur Baldvin Nökkvason, samherji Hauks, var mættur út á sjó í sínu fríi. Því var skotið að Hauki og hann spurður hvað hann hefði gert.

„Já, Gummi Baldvin er náttúrulega algjört testatröll en ég skellti mér upp í bústað með æskuvinum mínum og síðan eyddi ég nánast öllu fríinu í að klára að fínpússa lagið sem ég og Snorri erum að gera."

Snorri er Snorri Stefánsson, markvörður Fjölnis. Þeir ætla að gefa út lag og Haukur, sem er sonur Sjonna Brink heitins, útilokar ekki að í kjölfarið verði farið í að gera plötu.

Vildi frekar að Breki fengi stoðsendinguna
Haukur kemur inn í leikinn gegn Aftureldingu eftir að hafa innsiglað sigur Stjörnunnar gegn Þór í lokaleik fyrir landsleikjahlé. Einhverjir skutu á hann fyrir að hafa ekki gefið boltann til baka á ungstirnið Arnar Breka Björnsson sem lagði boltann á Hauk.

„Ég reyndar vissi ekki einu sinni af þessari umræðu, en ég vildi líka gefa Breka stoðsendinguna frekar."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Allir að mæta á völlinn að styðja, það hefur svo mikil áhrif!" segir Haukur að lokum.
Slapp
banner
banner
banner