Roy Keane og Bruno Fernandes hafa hreinsað andrúmsloftið eftir að hafa rifist í gegnum fjölmiðla. Bruno, sem er fyrirliði Manchester United, sakaði Keane um lygar en Keane hafði farið rangt með ummæli hans.
Keane greindi frá því í Stick to Football hlaðvarpinu í dag að hann hefði átt mjög gott spjall við Bruno.
„Það áttu sér stað þroskaðar samræður milli okkar. Hann hafði samband við mig og vildi ræða málin. Ég hringdi í hann og við áttum virkilega gott spjall," segir Keane.
„Stundum kemur maður hlutunum ekki alveg rétt frá sér og það hefur mikið gengið á í fjölmiðlum. Hann er stór leikmaður fyrir United og ég er fyrrum leikmaður United. Ég hafði gaman að því að spjalla við hann og vonandi naut hann þess líka. Þetta var gott spjall um ýmislegt og mér leið betur eftirá."

Af hverju sakaði Bruno hann um lygar?
Keane hafði gagnrýnt Bruno í hlaðvarpinu The Overlap og sagði hann hugsa meira um eigin velgengni en liðsins. Keane sagði í þættinum:
„Hann fór í viðtal eftir Forest leikinn og fyrirliðinn sagði: 'Ég hefði sennilega átt að skjóta nokkrum sinnum en ákvað að senda'. Vá, hvernig getur hugsunarháttur fótboltamanns verið um einstaklingsmet fyrir leik? Hann mun ekki vinna titla, ekki með þessu hugarfari til liðsins," sagði Keane í hlaðvarpinu The Overlap.
Bruno hafði hins vegar sagt: „Það voru líklega augnablik þar sem ég hefði átt að senda frekar en að skjóta. Ég er ánægður með stoðsendinguna en aðallega er ég ánægður með sigurinn og enda tímabilið vel."
Bruno var ósáttur við að Keane hafði rangt eftir sér.
„Mér er sama um gagnrýni. Ég hef alltaf tekið gagnrýni frá öllum og svara engu. Fólk er með sínar skoðanir. Það sem ég fíla ekki er þegar fólk lýgur um hluti og í þetta sinn þá var það sem Roy Keane sagði lygi. Annað hvort sá hann annað viðtal eða hann getur ekki sagt rétt frá en sem betur fer fyrir mig er þetta á upptöku," sagði Bruno,
„Ég sætti mig við gagnrýni, tek því hvort sem hann líkar við mig eða ekki sem leikmaður eða manneskja. Það sem ég kann ekki að meta er að hann leggi mér orð í munn sem ég sagði ekki."