Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur staðfest að Sergio Aguero muni ekki vera með gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í byrjun ágúst vegna meiðsla í hné.
Guardiola vill ekki horfa lengra en það en City vann fyrri leikinn á Spáni 2-1.
Ef City nær að klára dæmið mun liðið leika gegn Juventus eða Lyon í 8-liða úrslitum.
Guardiola vill ekki horfa lengra en það en City vann fyrri leikinn á Spáni 2-1.
Ef City nær að klára dæmið mun liðið leika gegn Juventus eða Lyon í 8-liða úrslitum.
Á mánudaginn mun það koma í ljós hvort tveggja ára bann Manchester City frá Evrópukeppnum muni standa.
Guardiola segist sannfærður um að bannið verði tekið til baka af CAS íþróttadómstólnum eftir að hafa fengið að sjá málsvörn félagsins.
Athugasemdir