Rakel Hönnu: Stór mistök í stórum leik
Auglýsing

Blikar komust yfir en náðu ekki að halda forystunni

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

<i>„Þetta eru mjög mikil vonbrigði. Við ætluðum að koma í þennan leik til þess að vinna hann en það tókst ekki í dag,”</i> sagði Rakel Hönnudóttir, afar vonsvikinn fyrirliði Breiðabliks eftir 1-1 jafnteflið gegn Stjörnunni.
„Við fengum alveg nokkur færi. Sérstaklega hérna í lokin til þess að klára þetta en boltinn vildi ekki inn. En ég er ekkert sérstaklega ánægð með rangstöðumarkið sem var dæmt af okkur. Ég er búin að heyra í fólki sem segir að þetta hafi ekki verið rangstaða og það eru rosalega stór mistök í svona stórum leik,” sagði Rakel en sjónvarpsendursýningar virðast benda til þess að löglegt mark hafi verið dæmt af Breiðablik.
Rakel segir að það hafi komið upp svolítið óskipulag þegar liðið missti mann af velli og það hafi mögulega haft áhrif á það hvernig fór.
„Við missum mann útaf og það þarf að skoða það aðeins aftur líka en það er svosem ekkert hægt að gera í því núna. Við svosem reyndum að skipuleggja okkur eitthvað eftir því en það var kannski smá óskiplag rétt eftir að við misstum mann útaf. Við náðum ekki alveg að gera nógu vel.”
„Þegar það eru tveir leikir eftir er alltaf von en hún er svosem ekkert stór,” sagði Rakel í lokin en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu fyrir ofan.