Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. september 2020 12:54
Magnús Már Einarsson
Hólmbert á leið til Brescia
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji Álasund, er líklega á leið til Brescia í Serie B samkvæmt frétt 433.is í dag.

Hólmbert átti öfluga innkomu í íslenska landsliðið í Þjóðadeildinni en hann skoraði gegn Belgum og fiskaði vítaspyrnu gegn Englandi í fyrstu mótsleikjum sínum með íslenska landsliðinu.

Álasund situr á botni norsku úrvalsdeildarinnar en Hólmbert hefur hins vegar skorað ellefu mörk í fjórtán leikjum og vakið mikla athygli.

Samkvæmt heimildum 433.is hefur fjöldi liða haft samband við Álasund síðustu vikur og reynt að kaupa Hólmbert, þar má nefna lið í Tyrklandi og Rússlandi.

Allt bendir hins vegar til þess að Brescia kaupi Hólmbert í sínar raðir á næstu dögum.

Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á mála hjá Brescia en félagið féll úr Serie A í sumar.
Athugasemdir
banner
banner