10.09.26 - 18:34
Brynjar Ingi Erluson
Býst við að Sarr snúi aftur til æfinga á mánudag

Ismaila Sarr snýr aftur eftir helgi

Mynd: EPA

Ismaila Sarr snýr aftur eftir helgi

Mynd: EPA
Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, segist gera ráð fyrir því að senegalski vængmaðurinn Ismaila Sarr snúi aftur til æfinga á mánudag.
Sarr er ósáttur við Crystal Palace eftir að félagið kom í veg fyrir að hann færi undir lok félagaskiptagluggans.
Liverpool hafði mikinn áhuga og lagði fram tilboð í þennan 28 ára gamla leikmann. Palace hafnaði því hins vegar og setti upp verðmiða sem þótti óraunhæfur.
Sarr hefur ekki snúið aftur til æfinga síðan. Hann átti að mæta síðasta mánudag en lét ekki sjá sig. Sage býst þó við honum eftir helgi.
„Það er alltaf sama sagan. Hann er ekki með liðinu í augnablikinu. Ég hélt að hann myndi mæta síðasta mánudag en það varð ekkert úr því.“
„Við búumst við honum aftur núna á mánudaginn. Honum líður betur með hverjum deginum og hann er mun glaðari en fyrir fimm eða tíu dögum. Það er í lagi en við viljum fá hann á völlinn núna.“
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég þarf að takast á við svona lagað. Við þurfum að hugsa vel um leikmanninn,“ sagði Sage.