Fotbolti.net
10.09.26 - 21:05
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

Man Utd vann þægilegan sigur

Man Utd vann þægilegan sigur

Canon

Mynd: EPA

Manchester United vann þægilegan 4-0 sigur á Sabah frá Aserbaísjan á Old Trafford í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Jamal Musiala sneri þá aftur í lið Bayern München eftir erfiðar vikur og skoraði í 5-0 stórsigri á Bodö/Glimt.
United-menn voru með völdin nánast allan leikinn og unnu þægilegan 4-0 sigur á Sabah í endurkomu sinni í Meistaradeildina.

Matheus Cunha skoraði sitt fyrsta Meistaradeildarmark á ferlinum á 27. mínútu eftir sendingu Patrick Dorgu inn í teiginn. Gestirnir, sem léku í keppninni í fyrsta sinn, fengu sitt besta færi skömmu síðar þegar Joy-Lance Mickels skallaði í hliðarnetið.

Eftir það rúllaði United yfir gestina. Bruno Fernandes skoraði sitt áttunda Meistaradeildarmark eftir frábæran undirbúning Youri Tielemans, sem sneri sér laglega í teignum og lagði boltann á Portúgalann. Benjamin Sesko bætti síðan við þriðja markinu þegar hann slapp í gegn, fór framhjá markverði Sabah og rúllaði boltanum í netið.

Lisandro Martinez rak svo síðasta naglann í kistu gestanna á 68. mínútu eftir mikinn klaufaskap í vörninni. Varamanninum Joshua Zirkzee tókst að hæla boltann fyrir markið, þar sem hann fór af varnarmanni og í markvörðinn. Sá missti sjónar á boltanum en Martinez var fyrstur að átta sig og potaði honum inn.

Öruggur skyldusigur hjá United, sem er komið á blað í Meistaradeildinni.

Sögulegt hjá Como

Como lék sinn fyrsta leik á þessu stigi keppninnar og hélt upp á það með glæsilegum 4-1 sigri á RB Leipzig.

Martin Baturina skoraði fyrsta Meistaradeildarmark félagsins á 15. mínútu þegar boltinn féll fyrir hann í teignum. Króatinn rann til en var fljótur að ná jafnvægi á ný og koma boltanum í netið.

Baturina var aftur á ferðinni á 38. mínútu þegar hann sendi Anastasios Douvikas í gegn og sá kláraði færið örugglega. Douvikas virtist í fyrstu rangstæður en markið stóð eftir skoðun hjá VAR.

Assane Diao bætti við þriðja markinu á 54. mínútu og gerði það glæsilega. Sending Nico Paz út til hans á hægri kantinum var ekkert sérstök en Diao náði boltanum, keyrði upp að endamörkum og hamraði honum í vinstra hornið.

Christopher Nkunku lagði upp mark fyrir Andrija Maksimovic og minnkaði muninn fyrir gestina en Como-menn voru ekki saddir. Maximo Perrone skoraði fjórða markið undir lokin og gulltryggði sögulegan sigur.

Como fer því af stað með látum í Meistaradeildinni og lofar byrjunin góðu.

Skoraði eftir erfiðar vikur

Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu 5-0 stórsigur á norska liðinu Bodö/Glimt á Allianz-leikvanginum.

Það gladdi stuðningsmenn Bayern að sjá Jamal Musiala aftur í liðinu eftir erfiðar vikur. Hann hafði tvisvar hnigið niður í leik og greindi síðar frá því að hann væri með taugasjúkdóm og fengi flogaköst.

Musiala var í byrjunarliðinu í kvöld og kom Bayern yfir á 47. mínútu þegar misheppnað skot Harry Kane skoppaði til hans og hann setti boltann í vinstra hornið.

Kane komst sjálfur á blað á 61. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Michael Olise áður en Alphonso Davies bætti við þriðja markinu með þrumufleyg utan teigs. Hornspyrna Olise var hreinsuð út á Kanadamanninn, sem kom á ferðinni og þrumaði boltanum í hægra hornið. Davies hefur sjálfur átt erfiða tíma vegna meiðsla undanfarin tímabil.

Þá var komið að Olise að skora og fyrra mark hans var af dýrari gerðinni. Lennart Karl lagði boltann á hann um 30 metrum frá marki og Frakkinn skrúfaði hann rakleiðis í vinstri samskeytin. Hann bætti síðan við öðru marki undir lokin og kórónaði frábæra frammistöðu.

Til að bæta gráu ofan á svart hjá gestunum fékk Odin Luras Bjortuft rauða spjaldið og Norðmenn fóru tómhentir heim eftir þungan skell.

Dramatík í Tékklandi

Frönsku bikarmeistararnir í Lens unnu hádramatískan 3-2 sigur á Slavia Prag í Tékklandi með tveimur mörkum í uppbótartíma.

Mikulas Konecny átti kvöld til að gleyma en varnarmaðurinn kom inn á hjá Slavia í hálfleik í stöðunni 0-0 og fékk rauða spjaldið þremur mínútum síðar.

Heimamenn komust þó yfir manni færri með marki Danijel Sturm áður en Abdallah Sima jafnaði þegar tuttugu mínútur voru eftir. Sturm var svo aftur á ferðinni á 88. mínútu og allt stefndi í ótrúlegan sigur Slavia.

Lens-menn voru hins vegar ekki búnir að segja sitt síðasta. Florian Thauvin jafnaði á fyrstu mínútu uppbótartímans og tveimur mínútum síðar skoraði Ruben Aguilar sigurmarkið. Heimamenn sátu því eftir með sárt ennið eftir að hafa verið hársbreidd frá sigri.

Bayern 5 - 0 Bodo-Glimt
1-0 Jamal Musiala ('47 )
2-0 Harry Kane ('61 )
3-0 Alphonso Davies ('77 )
4-0 Michael Olise ('83 )
5-0 Michael Olise ('90 )
Rautt spjald: Odin Luras Bjortuft, Bodo-Glimt ('87)

Manchester Utd 4 - 0 Sabah FK
1-0 Matheus Cunha ('27 )
2-0 Bruno Fernandes ('42 )
3-0 Benjamin Sesko ('45 )
4-0 Lisandro Martinez ('68 )

Slavia Praha 2 - 3 Lens
1-0 Danijel Sturm ('51 )
1-1 Abdallah Sima ('73 )
2-1 Danijel Sturm ('88 )
2-2 Florian Thauvin ('90 )
2-3 Ruben Aguilar ('90 )
Rautt spjald: Mikulas Konecny, Slavia Praha ('49)

Como 4 - 1 RB Leipzig
1-0 Martin Baturina ('15 )
2-0 Anastasios Douvikas ('38 )
3-0 Assane Diao ('54 )
3-1 Andrija Maksimovic ('58 )
4-1 Maximo Perrone ('90 )
Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

Canon

Mynd: EPA

Como vann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni

Como vann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: EPA

Lens fagnaði dramatískum sigri í Tékklandi

Lens fagnaði dramatískum sigri í Tékklandi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.