10.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Wirtz er ekki stærsta vandamálið - „Hafa ekki gæðin“

Jeremie Frimpong hefur ekki verið góður síðan hann kom frá Bayer Leverkusen

Mynd: EPA

Hvorki Frimpong né Kerkez hafa náð að fylgja eftir góðum árangri með Leverkusen og Bournemouth

Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og spekingur á talkSport segir Florian Wirtz ekki vera stærsta vandamál félagsins.
Liverpool var til umræðu á talkSport þar sem frammistaða Alexander Isak og Wirtz var sérstaklega til skoðunar.
Báðir hafa sætt gagnrýni og háir verðmiðar þeirra ekki hjálpað til. Wirtz kostaði 116 milljónir punda en Isak var keyptur fyrir 125 milljónir.
Murphy hefur þó meiri áhyggjur af bakvörðunum Milos Kerkez og Jeremie Frimpong.
„Stærsta vandamál Liverpool er að bakverðirnir eru ekki nógu góðir. Þeir eru heldur ekkert að bæta sig og hafa þetta einfaldlega ekki í sér.“
„Þeir leggja hart að sér en fyrirgjafirnar og ákvarðanatakan á síðasta þriðjungi vallarins eru lélegar,“ sagði Murphy.
Stuðningsmenn Liverpool voru góðu vanir með Andy Robertson og Trent Alexander-Arnold í bakvarðastöðunum undanfarin ár. Trent fór til Real Madrid á síðasta ári og Robertson gekk til liðs við Tottenham í sumar.
„Þeir eru tveir af þeim bestu þegar kemur að stoðsendingum, gæðum og sendingum sem skipta sköpum. Nú hefur Liverpool fengið tvo bakverði sem ná ekki sömu gæðum.“
„Bestu lið heims eru með frábæra bakverði því andstæðingarnir loka miðjunni vel og þá opnast svæði á köntunum. Bakverðirnir eru því oft með boltann en Frimpong og Kerkez hafa ekki gæðin til að brjóta niður varnir annarra liða,“ sagði Murphy.