Elmar: Veit ekki hvernig Lettar ætluðu að skora
Auglýsing

Theodór Elmar í eldlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Elmar í eldlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Elmar Bjarnason var frábær í hægri bakverðinum í 3-0 sigri Íslands gegn Lettlandi í undankeppni EM 2016 í Riga í kvöld.
,,Þetta er bara frábært. Við vorum mjög þolinmóðir og tókum okkar tíma, við vissum að þeir myndu leggjast aftur. Þegar við skoruðum fyrsta markið var þetta orðið svolítið "home safe" fannst manni," sagði Theodór Elmar við Fótbolta.net eftir leik.
,,Það kemur mér meira að segja á óvart hversu aftarlega þeir voru, þeir settu enga pressu á okkur. Ég veit ekki alveg hvernig þeir ætluðu að skora sín mörk ef til þess kæmi. En þetta sýnir að við erum með nógu góða tæknilega leikmenn til að opna lið sem eru með alla bakvið boltann."