Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. október 2019 14:15
Fótbolti.net
Þjálfaramálin - Sex félög í þjálfaraleit
Ólafur Kristjánsson er sagður hafa hafnað tilboði frá Danmörku.
Ólafur Kristjánsson er sagður hafa hafnað tilboði frá Danmörku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir vill fá Davíð Snorra Jónasson.
Fylkir vill fá Davíð Snorra Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Árnason fór í Kópavoginn.
Halldór Árnason fór í Kópavoginn.
Mynd: Breiðablik
Sigurður Ragnar er orðaður við Víking Ólafsvík.
Sigurður Ragnar er orðaður við Víking Ólafsvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvert verður næsta skref Bjössa Hreiðars?
Hvert verður næsta skref Bjössa Hreiðars?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfaraslúðrið hefur sjaldan verið eins áberandi og einmitt núna. En hvernig er staðan á þjálfaramálunum í tveimur efstu deildum Íslandsmóts karla?

Hér má sjá samantekt á því og við látum fylgja með þær sögur sem háværastar eru núna. Sex félög í efstu tveimur deildunum eru án þjálfara.

PEPSI MAX-DEILD KARLA:

KR - Rúnar Kristinsson
Þjálfari ársins verður áfram við stjórnvölinn hjá Íslandsmeisturunum en erlend félög eru þó sögð vera með hann á blaði.

Breiðablik - Óskar Hrafn Þorvaldsson
Óskar var staðfestur sem nýr þjálfari Blika í staðinn fyrir Ágúst Gylfason. Engar hökur fóru í gólfið þegar það var tilkynnt.

FH - Ólafur Kristjánsson
Ólafur verður áfram í Kaplakrika en hann er sagður hafa hafnað tilboði frá Esbjerg í Danmörku.

Stjarnan - Rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar verður áfram í Garðabænum en hans vinna fer í að endurnýja í leikmannahópnum. Sögur eru um að Fjalar Þorgeirsson og Veigar Páll Gunnarsson, aðstoðarmenn hans, láti af störfum.

KA - Óli Stefán Flóventsson
Óli verður áfram með stjórnartaumana á Akureyri en verið er að leita að öflugum aðstoðarmanni sem getur tekið við keflinu þegar Óli missir út æfingar af fjölskylduástæðum.

Valur - Heimir Guðjónsson
Heimir var staðfestur sem nýr þjálfari Vals en Valsmenn ákváðu að framlengja ekki við Ólaf Jóhannesson. Ekki er ráðið hver verður aðstoðarmaður Heimis.

Víkingur - Arnar Gunnlaugsson
Bikarmeistararnir halda áfram vegferðinni með Arnar við stýrið.

Fylkir - ÁN ÞJÁLFARA
Fylkismenn vilja fá Davíð Snorra Jónasson, þjálfara U17 landsliðsins, en ólíklegt er að þeir verði að ósk sinni. Davíð verður væntanlega áfram hjá KSÍ. Sagt er að Ólafur Ingi Skúlason verði hluti af næsta þjálfarateymi Fylkis.

HK - Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar hefur verið að gera virkilega flotta hluti með HK og verður þar áfram.

ÍA - Jóhannes Karl Guðjónsson
Jói Kalli gerði fimm ára samning við Skagamenn fyrr á árinu.

Grótta - ÁN ÞJÁLFARA
Óskar Hrafn Þorvaldsson er tekinn við Breiðabliki og Halldór Árnason, sem Grótta vildi fá til að taka við af honum, fylgdi honum í Kópavoginn.

Fjölnir - Ásmundur Arnarsson
Ásmundur kom Grafarvogsliðinu aftur upp í deild þeirra bestu.

INKASSO-DEILD KARLA:

Grindavík - ÁN ÞJÁLFARA
Túfa hefur yfirgefið Grindavík og óvíst hver tekur við. Milan Stefán Jankovic og Sigurbjörn Hreiðarsson hafa verið orðaður við starfið.

ÍBV - Helgi Sigurðsson
Helgi var ekki lengi atvinnulaus. Eftir að hafa hlerað menn taldi stjórn ÍBV að Helgi væri besti kosturinn í að reisa Eyjamenn við að nýju.

Leiknir - Sigurður Heiðar Höskuldsson
Siggi Höskulds náði frábærum árangri með Leikni og verður áfram í Breiðholti en liðið fór taplaust í gegnum seinni umferðina.

Víkingur Ó. - ÁN ÞJÁLFARA
Ólafur Brynjólfsson, Sigurður Jónsson, Elinbergur Sveinsson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hafa verið orðaðir við Ólafsvíkurliðið sem er að fara inn í nýja tíma.

Keflavík - Eysteinn Húni Hauksson
Eysteinn heldur áfram að byggja upp Keflavíkurliðið.

Þór - ÁN ÞJÁLFARA
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Völsungs, er sagður hafa hafnað samningstilboði frá Þórsurum og spurning hvert næsta skref verður í Þorpinu.

Fram - Jón Þórir Sveinsson
Ekkert hefur heyrst neitt annað úr herbúðum Fram en að Jón verði áfram.

Afturelding - Arnar Hallsson
Allt bendir til þess að Arnar verði áfram eftir að hafa haldið Mosfellingum uppi.

Magni - Sveinn Þór Steingrímsson
Það var mikil bæting á Magnaliðinu eftir að Sveinn tók við í sumar og hann náði að halda liðinu uppi.

Þróttur ÁN ÞJÁLFARA
Ágúst Gylfason var efstur á blaði Þróttara en talið er ólíklegt að hann taki við. Páll Einarsson og Sigurbjörn Hreiðarsson eru meðal nafna sem nefnd hafa verið.

Leiknir F. - Brynjar Skúlason
Brynjar var þjálfari ársins í 2. deild en Fáskrúðsfirðingar unnu deildina eftir að hafa verið spáð falli fyrir mót.

Vestri - Bjarni Jóhannsson
Gamli refurinn Bjarni Jó náði að koma Vestra upp í Inkasso-deildina.
Athugasemdir
banner
banner