Fotbolti.net
10.10.20 - 15:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arias meiddist illa - Sá sem tæklaði í tárum þegar hann sá útkomuna

Arias

Arias

Canon

Mynd: Getty Images

Santiago Arias, hægri bakvörður kólumbíska landsliðsins, meiddist alvarlega snemma leiks þegar Kólumbía mætti Venesúela í nótt. Arias er að láni frá Atletico Madrid hjá Bayer Leverkusen.

Arias var að renna sér í boltann til að ná honum af Darwin Machis en útkoman úr návíginu leit vægast sagt ekki vel út.

Þegar Machis sá hvernig löppin á Arias fór úr návíginu tók hann um andlit sér. Í kjölfarið fékk hann að líta rauða spjaldið sem má telja frekar vafasamt þar sem um algjöra óheppni er að ræða og lítið sem Machis gat gert. Dómarinn hætti svo við rauða spjaldið eftir að hafa skoðað atvikið í VAR.

Myndskeið af atvikinu má sjá hér að neðan en það ber að vara við að þetta er ekki fyrir viðkvæma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.