Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 10. október 2021 18:54
Brynjar Ingi Erluson
Verratti ætlar að klára ferilinn hjá PSG
Marco Verratti
Marco Verratti
Mynd: EPA
Marco Verratti, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, ætlar sér að klára ferlinn hjá franska stórliðinu.

Verratti er 28 ára gamall miðjumaður en hann kom til PSG frá Pescara fyrir níu árum síðan.

Hann elskar að vera í París og þrátt fyrir áhuga frá stórliðum frá öðrum löndum hefur hann ákveðið að klára ferlinn hjá PSG.

„Ég á ekki mikinn tíma eftir en það sem ég veit er að ég mun alltaf vera hér. Ég hef fengið tækifærið til að spila gegn frábærum leikmönnum í frábærum leikjum og það er það eina sem ég vildi," sagði Verratti.

„Ég varð ástfanginn af þessu félagi og þess vegna mun ég alltaf gefa allt mitt í þetta til þess að endurgjalda traustið sem mér var gefið. Ég var ungur strákur sem kom frá litlum bæ á Ítalíu og hér hef ég fengið allt."

„Börnin mín fæddust hér og bestu árin eru í kringum 18 ára aldurinn. Ég fékk að upplifa þau hér og það var ótrúlegt. Ég varð að manni og fann ástina. Allt sem ég hef upplifað hér mun skilja eftir sig ótrúlegar minningar,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner