10.10.26 - 20:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi: Ég kyssti Bentancur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, var ánægður með Rodrigo Bentancur sem fékk rautt spjald fyrir að skalla Luke Shaw í 1-1 jafntefli liðsins gegn Man Utd í kvöld.
„Við sýndum í fyrsta sinn á tímabilinu að við erum lið. Við spiluðum sem lið. Við þjáumst, við réðum ríkjum. Við vorum allan tíman inn í leiknum," sagði De Zerbi.
„Svona er fótbolti. Ég kunni að meta þetta atvik með rauða spjaldið á Bentancur. Við þurfum á þessu að halda, ekki að fá rautt en við getum ekki sætt okkur við tap. Getum ekki sætt okkur við að fá á okkur mark."
„Við þurfum að bregðast við á allan mögulegan hátt, ekki svona en ég kyssti Bentancur inn í klefa því við þurfum svona viðbrögð, svona viðbrögð með karakter," sagði De Zerbi að lokum.