10.10.26 - 16:45
Kári Snorrason
„Ekki boðlegt ef þú spilar fyrir Stjörnuna“
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mjög lélegur leikur. Frá fyrstu mínútu skynjaði maður orkuleysi í liðinu. Við náðum aldrei að trekkja okkur í gang. Við áttum skilið að tapa hérna í dag,“ sagði Brynjar Kristmundsson, einn af bráðabirgðaþjálfurum Stjörnunnar, eftir 0-3 tap liðsins gegn KA í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 3 KA
„Það er eitt að tapa fótboltaleik en annað að tapa með þessum hætti, að bera ekki meiri virðingu fyrir félaginu en þetta. Þetta var ekki boðleg frammistaða. Við vorum að koma úr fríi og æfingavikan hafði verið góð. Menn æfðu vel og keppni á æfingum. En áhyggjuefni að orkustigið hafði verið lágt,“ segir Brynjar jafnframt.
Aðspurður um hvað hann teldi hafi orsakað frammistöðu Stjörnumanna í dag segir Brynjar ekki beint geta lagt fingur á það.
„Mögulega, sem er ekki rétt, horfa menn á að mótið sé búið því við erum ekki að keppa að neinu. Það er bara röng hugsun, þú ert ennþá að spila fyrir Stjörnuna og það þarf að bera virðingu fyrir því. Mótið er 27 leikir og það þarf að spila alla þá leiki almennilega. Ef þú spilar fyrir Stjörnuna er þetta ekki boðleg frammistaða.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Besta karla - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 25 | -4 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 25 | -16 | 19 |