Fotbolti.net
10.10.26 - 16:45
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Leik hætt vegna mótmæla - Romero hetja Atlético

Stuðningsmenn Rayo köstuðu pappírsflugvélum inn á völlinn

Stuðningsmenn Rayo köstuðu pappírsflugvélum inn á völlinn

Canon

Mynd: EPA

Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero tryggði Atlético Madríd 2-1 sigur á Deportivo Alaves í La Liga í dag.
Alejandro Grimaldo kom Atlético yfir á 33. mínútu eftir laglegan undirbúning Jonathan David. Hann lagði boltann fyrir bakvörðinn sem skoraði með hörkuskoti innan teigs.

Lucas Boye jafnaði úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en Atlético fékk byr í seglin þegar Angel Perez, leikmaður Alaves, var rekinn af velli hálftíma fyrir leikslok.

Romero tryggði gestunum svo sigurinn undir lokin með glæsilegum skalla eftir fyrirgjöf Alex Baena. Atlético vann 2-1 og er í öðru sæti með 19 stig en Alaves í sjötta sæti með ellefu stig.

Leik Rayo Vallecano og Athletic var hætt vegna mótmæla stuðningsmanna heimaliðsins sem köstuðu pappírsboltum og pappírsflugvélum inn á völlinn.

Stuðningsmennirnir vilja Martin Presa, forseta Rayo, burt og segja hann ekki bera hag félagsins fyrir brjósti. Þeir gagnrýna meðal annars miðaverð, ástand leikvangsins og framkomu hans gagnvart kvennaliðinu.

Ekki reyndist unnt að halda leiknum áfram og hefur honum verið frestað um óákveðinn tíma.

Alaves 1 - 2 Atletico Madrid
0-1 Alejandro Grimaldo ('33 )
1-1 Lucas Boye ('45 , víti)
1-2 Cristian Romero ('87 )
Rautt spjald: Angel Perez, Alaves ('61)

Rayo Vallecano 0 - 0 Athletic
Cristian Romero skoraði sigurmark Atlético

Cristian Romero skoraði sigurmark Atlético

Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.