Fotbolti.net
09.11.26 - 19:34
Ívan Guðjón Baldursson

Trausti Rafn tekinn við á Selfossi (Staðfest)

Trausti Rafn tekinn við á Selfossi (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Kvennaboltinn
Trausti Rafn Björnsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna á Selfossi og gerir tveggja ára samning við ungmennafélagið.
Trausti þekkir mjög vel til hjá félaginu og hefur notið góðs árangurs með yngri flokka kvenna í tæpan áratug. Hann var ráðinn sem aðstoðarþjálfari Gunnars Borgþórssonar þegar Selfoss flaug upp úr 2. deild í fyrrasumar og er hann með UEFA A þjálfaragráðu.

Það ríkir mikil ánægja á Selfossi með þessa ráðningu en Trausti er mögulega yngsti aðalþjálfari landsins. Hann er fæddur árið 1999 og er því aðeins 27 ára gamall.

„Þetta er spennandi tækifæri og mikill heiður að vera orðinn þjálfari liðsins. Mér þykir vænt um félagið og hlakka til að vinna með leikmönnum og öllu fólkinu í kringum liðið að því að byggja áfram upp öflugt kvennastarf á Selfossi," segir Trausti.

„Við höfum margt til að byggja á og ég er spenntur að hefjast handa og takast á við verkefnin fram undan."

Selfoss endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar, með 30 stig úr 18 leikjum - aðeins fimm stigum frá sæti í Bestu deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.