09.11.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Einn á spítala eftir að gestastúkan í Tromsö gaf sig

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tromsö tók á móti Bodö/Glimt í norska boltanum í gær og tapaði 0-2 en Glimt er í harðri titilbaráttu við Viking á lokasprettinum, á meðan Tromsö er án sigurs í síðustu fimm leikjum í baráttunni um Evrópusæti.
Úrslitin komu ekki á óvart í Tromsö en það var annað atvik sem litaði leikinn, þegar lítill hluti af gestastúkunni gaf sig.
Kátir stuðningsmenn Glimt hoppuðu og trölluðu þegar kom gat á gestastúkuna undir lok fyrri hálfleiks og féllu 'allt að fimm manns' í gegnum holuna sem myndaðist.
Einn af þeim sem datt hlaut áverka og þurfti að fara á spítala en hann er ekki í lífshættulegu ástandi.
Það var mikil rigning meðan á leiknum stóð og voru stuðningsmenn gestaliðsins færðir á annan hluta leikvangsins í kjölfarið af atvikinu.
Þess má geta að heimavöllur Tromsö er nyrsti leikvangur í efstu deild norska boltans.