Fotbolti.net
09.11.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rogers sagður hafa lekið upplýsingum með liðsvalinu í Fantasy

Rogers sagður hafa lekið upplýsingum með liðsvalinu í Fantasy
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hvetur starfsfólk og leikmenn til að hætta að nota innherjaupplýsingar til breyta liðum sínum í enska Fantasy leiknum heimsfræga. Liðin sem starfsfólk og leikmenn velja í draumaliðsleiknum geta gefið næstu andstæðingum liðsins mikilvægar vísbendingar.
Joao Pedro var ekki með þegar Chelsea tapaði óvænt á heimavelli gegn Tottenham í seinni hluta október, vegna meiðsla sem félagið hafði ekki tilkynnt opinberlega.

Glöggir Fantasy spilarar tóku eftir því fyrir leikinn að Morgan Rogers, leikmaður Chelsea, og fleiri frá félaginu höfðu selt Joao Pedro úr liðum sínum fyrir þennan mikilvæga nágrannaslag á Stamford Bridge.

„Ég er ekkert inni í þessu máli og veit ekkert um þennan Fantasy leik," sagði Xabi Alonso þjálfari þegar BBC spurði hann út í málið.

Þetta er ekki fyrsta lekavandamálið hjá Chelsea á árinu eftir að byrjunarliði Liam Rosenior var lekið til fjölmiðla fyrir mikilvæga leiki gegn Paris Saint-Germain í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. PSG sigraði einvígið 8-2 samanlagt og vann að lokum keppnina eftir úrslitaleik gegn Arsenal.

Á síðustu leiktíð gerðist Marc Cucurella sekur um að leka mikilvægum upplýsingum úr herbúðum Chelsea til rakarans síns.

Chelsea er ekki eina félagið sem hefur óvart lekið upplýsingum í gegnum liðsval starfsmanna sinna í Fantasy, þar sem svipuð dæmi hafa komið upp hjá Arsenal, Liverpool, Aston Villa, Leicester og Newcastle meðal annars.

Það eru rúmlega 11 milljón aðgangar sem taka þátt í draumaliðsleiknum í ár.
Rogers sagður hafa lekið upplýsingum með liðsvalinu í Fantasy
Canon

Mynd: Chelsea

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.