09.11.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hætta við að slíta samstarfinu á Austurlandi

Mynd: Höttur/KFA

Mynd: Höttur/KFA

Mynd: Höttur/KFA

KFA og Höttur hafa gefið út sameiginlega tilkynningu þess efnis að félögin eru hætt við að slíta samstarfi sínu í meistaraflokki og 2. flokki kvenna eins og tilkynnt hafði verið í október.

TENGT EFNI
FHL spilar undir merkjum Hattar á næsta ári
Stjórnendur hafa rætt saman síðustu daga og er niðurstaðan sú að Höttur rekstrarfélag dregur til baka uppsögn á aðildarsamningi félaganna.
„Bréf RH vakti umræðu í samfélaginu um framtíð samstarfsins og varð tilefni til samtals milli stjórna félaganna. Í þeim viðræðum náðist samkomulag um að halda samstarfinu áfram, vinna saman að því að einfalda umgjörð þess og skýra betur verkaskiptingu," segir meðal annars í tilkynningunni.
„Stjórnir RH og KFA vilja þakka öllum þeim sem hafa komið að starfi og uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar á Austurlandi kærlega fyrir þeirra störf. Stjórnirnar hlakka til að vinna áfram með því fólki sem hefur staðið að starfinu."
Liðið mun því heita Höttur/KFA í meistaraflokki og 2. flokki kvenna, eftir að hafa verið á undanþágu með nafnið FHL undanfarin ár. Höttur/KFA spilar í Lengjudeildinni eftir að FHL endaði í sjötta sæti í sumar.