Fotbolti.net
11.01.19 - 19:32
Magnús Már Einarsson

Gummi Tóta: Var farinn að hugsa hvernig ég ætti að fagna

Auglýsing
Gummi Tóta með boltann í leiknum í kvöld.

Gummi Tóta með boltann í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Icelandair
<i>„Mér fannst frammistaðan flott, sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég held að maður verði að vera sáttur við úrslitin. Þetta er hörkulið sem við vorum að spila við,"</I> sagði Guðmundur Þórarinsson við Fótbolta.net eftir 2-2 jafntefli Íslands og Svíþjóðar í Katar í kvöld.

<i>„Það er frábært að fá að spila landsleik, það er langt síðan síðast. Aðstæðurnar eru til fyrirmyndar og þetta var geggjað."</I>

Guðmundur var mjög ógnandi á vinstri kantinum í fyrri hálfleik og komst nálægt því að skora en Oscar Linner í marki Svía varði vel.
„Ég var farinn að hugsa hvernig ég ætti að fagna markinu. Þetta var frábær varsla og það var svekkjandi að sjá hann ekki inn. Við fengum dauðafæri upp úr horninu í kjölfarið en svona er þetta í fótbolta, það er stutt á milli. Auðvitað er grátlegt að ná ekki fyrsta landsliðsmarkinu en það kemur bara seinna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.