Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 11. janúar 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd að selja Fosu-Mensah til Leverkusen
Manchester United hefur samþykkt að selja varnarmanninn Timothy Fosu-Mensah til Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Manchester Evening News greinir frá þessu í dag.

Hinn 23 ár gamli Fosu-Mensah verður samningslaus í sumar en hann hafnaði nýjum samningi hjá Manchester United fyrr í vetur.

Í stað þess að missa Fosu-Mensah frítt ákvað Manchester United að selja leikmanninn til Leverkusen á 1,5 milljónir punda.

Leverkusen, sem er í 3. sæti í þýsku Bundesligunni, hafði betur í baráttu við Ajax og Hertha Berlin um Fosu-Mensah.
Athugasemdir
banner