Fotbolti.net
11.02.21 - 23:40
Victor Pálsson

Solomon staðfestir áhuga frá enskum liðum

Solomon staðfestir áhuga frá enskum liðum
Canon

Mynd: Getty Images

Manor Solomon, leikmaður Shakhtar Donetsk, hefur staðfest að félög á Englandi séu að horfa til hans.
Lið á borð við Arsenal hafa verið orðuð við Solomon sem er aðeins 21 árs gamall og hefur gert frábæra hluti í Úkraínu.

Um er að ræða efnilegan framherja sem á að baki leiki í Meistaradeildinni með Shakhtar síðustu tvö árin.

Shakhtar keypti Solomon á sex milljónir evra en hann lék þá með liði Maccabi Petah Tikva í heimalandinu Ísrael.

„Það eru viðræður í gangi við lið á Englandi. Það eru hlutir sem gætu gerst í sumar," sagði Solomon.

„Draumurinn minn er að spila á Englandi og það virðist vera besti kosturinn fyrir mig. Lið á Englandi geta spilað fótbolta."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.