Víkingur samþykkti í byrjun mánaðar tilboð frá sænska félaginu Kalmar í Valdimar Þór Ingimundarson. Valdimar, sem var valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð, ákvað hins vegar að hafna sænska liðinu og vera áfram í Víkinni.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er ánægður með ákvörðun Valdimars og telur það vera hrós fyrir Víking sem félag að leikmenn kjósi frekar að vera í Víkinni frekar en að halda út og fara í sænsku úrvalsdeildina.
Fótbolti.net ræddi við Sölva um ákvörðun Valdimars, væntanlegt landsliðsverkefni og stöðuna á leikmannahópnum.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er ánægður með ákvörðun Valdimars og telur það vera hrós fyrir Víking sem félag að leikmenn kjósi frekar að vera í Víkinni frekar en að halda út og fara í sænsku úrvalsdeildina.
Fótbolti.net ræddi við Sölva um ákvörðun Valdimars, væntanlegt landsliðsverkefni og stöðuna á leikmannahópnum.
„Stóðum ekki í vegi fyrir honum“
„Ég var mjög sáttur með það ef ég á bara að hugsa þetta í samhengi við Víking. Valdimar er klárlega einn af betri leikmönnum deildarinnar og mikilvægur fyrir Víkingsliðið. Hann verður risastór hluti af því sem við ætlum okkur að gera í sumar.
Það er mikið ánægjuefni að hann skyldi ákveða að vera áfram hjá okkur. Það sýnir að honum líði vel. Þetta er kredit fyrir Víkingsklúbbinn að leikmenn kjósi að vera í Víking frekar en að fara í sænsku úrvalsdeildina. Þannig að við erum gríðarlega sáttir með það.“
Hugsaði hann sig lengi um?
„Ég veit ekki hversu lengi hann hugsaði um þetta. Við vorum ekki að fara standa í vegi fyrir honum, þetta var bara hans ákvörðun. Auðvitað létum við hann vita hversu mikilvægur hann er fyrir okkur og við vildum glaðir halda honum áfram. En þetta var undir honum komið og hans ákvörðun.“
Landsliðsverkefnið hefur lítil áhrif
Víkingur er það lið sem er með flesta fulltrúa í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í æfingaleik í lok mánaðar. Alls voru leikmennirnir sex, en Aron Elís Þrándarson þurfti að draga sig úr hópnum.
Er vont að missa svona marga stóra pósta út?
„Þetta lendir ekkert illa á okkur þannig séð. Þetta hefur áhrif á úrslitaleik Reykjavíkurmótsins, en við erum með stóran og breiðan hóp. Þetta er gott tækifæri fyrir þessa leikmenn. Það er alltaf mikill heiður að spila fyrir land og þjóð. Það var aldrei neitt í deiglunni hjá okkur að standa í vegi fyrir þá sem eru að fara út.
Þetta er flott tækifæri og fínn gluggi fyrir marga að sýna sig. Við erum ánægðir með að það hafa verið margir valdnir úr okkar liði. Þetta truflar undirbúning okkar ekkert mikið.“
Hvað finnst þér um valið almennt séð?
„Þetta er áhugavert val. Það eru mikið af eldri leikmönnum. Ef ég hef lesið rétt þá eru níu leikmenn yfir þrjátíu og tveggja ára. En Arnar er með sínar pælingar með þetta, það hlýtur að vera eitthvað á bakvið þetta. Ég er ekki sammála öllu.“
Einhverjir sem þú saknar frá Víkingi?
„Ég hefði viljað sjá allt Víkingsliðið þarna. Það eru fleiri leikmenn sem ég hefði viljað sjá úr Víkingsliðinu í þessum hóp og bjóst við að vera valdnir. En eins og ég segi þá er pottþétt góð ástæða fyrir þessu hjá Arnari.“
Gylfi snýr aftur
Gylfi Þór Sigurðsson snýr aftur í landsliðshóp Íslands í fyrsta sinn í stjóratíð Arnars Gunnlaugssonar. Hann lék síðast landsleik í nóvember 2024. Sölvi segir það gleðitíðindi og telur hann Gylfa hafa getað hjálpað liðinu í undankeppni HM á síðasta ári.
„Það eru mikil gleðitíðindi. Ég tel að hann hafi getað hjálpað liðinu í undankeppninni síðast. Þetta er okkar allra besti fótboltaleikmaður hér á Íslandi, gífurlegur sigurvegari og nýtist vel í hvaða hóp sem er.“
„Enginn leikmaður kominn í toppstand“
Víkingur sótti framherjann Elías Má Ómarsson frá kínverska liðinu Meizhou Hakka undir lok síðasta árs. Hann byrjaði í Lengjubikarnum gegn Njarðvík síðasta laugardag og lék rúmar 60 mínútur. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli, en umræða skapaðist eftir leikinn að Elías Már hafi virkað þungur þær mínútur sem hann spilaði.
Sölvi var spurður hvernig standið á Elíasi væri.
„Hann var úti í Kína og þurfti að klára sín mál við kínverska liðið. Það líður töluverður tími þar til að hann fer á æfingu með okkur. Það eru hörkuæfingaprógramm hjá okkur núna. Það er enginn af okkar leikmönnum komnir í toppstand núna í febrúar. Það sama gildir um hann og aðra leikmenn, það er hellingur eftir af undirbúningstímabilinu.“
Daði missir af upphafi móts
Hver er staðan á hópnum?
„Sveinn Gísli og Helgi (Guðjónsson) lentu í veikindum fyrir síðasta leik, það var bara klassíska flensan sem náði þeim, þess vegna spiluðu þeir ekki síðasta leik. Erlingur Agnarsson er að koma til baka eftir aðgerð á mjöðmum. Sveinn Margeir er í sinni endurhæfingu, Atli Þór Jónasson er að koma til baka og er líka í sinni endurhæfingu.“
Daði Berg Jónsson hefur verið meira og minna frá síðan í ágúst vegna kviðslita. Hann fór í aðgerð fyrr í vikunni og býst Sölvi við honum eftir um þrjá mánuði.
„Daði fór í aðgerð á þriðjudaginn. Það bíður honum bataferli núna sem gæti tekið þrjá mánuði. Hann er ungur og vonandi getur hann náð sér á skemmri tíma. Það eru allar líkur að hann missi af byrjun móts. Maður vonast til að þessir yngri leikmenn ná sér hraðar - Ég veit að sjúkraþjálfarinn verður ekki ánægður með þessi ummæli.
Það þarf bara að fara varlega með þessa stráka. Sérstaklega með Daða sem hefur verið lengi í meiðslum. Við viljum frekar fara hægar af stað svo hann verði ekki fyrir bakslagi. Þetta reynir mikið á hausinn að vera svona lengi frá og það gæti verið erfitt að fá 'setbacks' ofan á það.
Við erum með stóran og breiðan hóp þannig að við þurfum ekki að drífa okkur í að koma honum inn á völlinn. Það gerði þetta erfitt fyrir hann í fyrra er að hann var það mikill lykilmaður fyrir Vestra. Þeir sáu ekki tækifæri á að hvíla hann þegar hann hefði svo sannarlega átt á því að halda. Honum var ýtt í að spila flesta leiki hjá þeim enda mjög mikilvægur leikmaður fyrir þetta lið.“
Athugasemdir



